Allt sem þú lest er lygi

Betra er autt rúm en illa skipað

Blogg

"Betra er autt rúm, en illa skipað"

16.3.2010

Árshátíð 365 miðla

Jæja þá er mín 3 árshátíð búin á vegum 365 miðla.

Hún var nú ekki eins flott og í fyrra og nátturulega alls ekki eins flott og árið þar á undan. En síðasta ár sökum kreppunar var ákveðið að halda standandi árshátíðarpartý í listasafni Rvk. Fjólublátt ljós við barinn, flottar veitingar í fljótandi og föstu formi. Stuðmenn ásamt Eyþór Inga og fleiri skemmtilegir óvæntir gestir tróðu upp.  Mikið af fínu og flottu fólki sem allir skemmtu sér alveg þrælvel þrátt fyrir sárar fætur......

Í ár var rautt ljós við barinn, sem ég eiginlega tók lítið eftir, salurinn var minnkaður helling á hliðunum með svörtum klæðum. Maturinn var víst ekkert spes og ég var lítið vör við þetta í fljótandi forminu. Minna fannst mér af fólki í ár þó það væri  hægt að velja um fleiri sæti núna en í fyrra, reyndar dreift út um allt hús og ekki kannski á besta staðnum í húsinu.. Frekar langt frá salnum, eiginlega bara út í útidyragangi. Hljómsveitin var ekkert spes. Milljónamæringarnir ásamt Bjarna Ara og Pálma Gunnars sem gestasöngvara. En Dj inn var þrælgóður og eyddi ég nánast öllum mínum tíma á dansgólfinu þegar hann var að spila. Held ég hafi aldrei dansað svona mikið á árshátíð áður. Sökum þess þá tók ég því miður ekki mikið af myndum og náði ekki eins mikið að njóta veitingarinnar sem í boði var í fljótandi forminu. Sem er kannski ágætt svona einu sinni ;) 

Endaði svo kvöldið í smá drykk á Austur, sem ég hefði kannski betur átt að sleppa. Segjum bara að heilsan hefði orðið 100 sinnum betri ef ég hefði sleppt því... En ég hafði þó vit á því að hunskast heim á réttum tíma :)

Ég hef hent inn þeim myndum sem ég tók í albúmið hérna til hliðar.  Þið verðið bara að afsaka að það eru alveg ROSALEGA margar myndir af sjálfri mér... Ég var bara agalega montin með útkomuna á útliti mínu fyrir þessa árshátið að ég vildi festa það á filmu og nota albúmið hérna sem geymsluhólf undir allar mínar myndir ef tölvan mín skyldi nú krassa einn daginn........ Þannig þið verðið bara að fyrirgefa sjálfselsku mína á sjálfri mér ;)

En ég held að á næsta ári muni nefndin hugsa sig 2x um hvernig þeir vilji hafa næstu árshátíð. Fólk er orðið þreytt á þessum standandi partýum sem fyrirtækið hefur veirð að bjóða og nýtist illa fyrir makana og eigi eftir að hafa sitjandi borðhald næst, eða ég vona það....

Þrátt fyrir þessa "neikvæðnu punkta mína" þá skemmti ég mér alveg hrikalega vel og er það fyrir öllu.... Er enn pínu þreytt samt á bæði líkama og sál en það fylgir þessu bara......














Svo næstu helgi er það road trip með píkunum í 30 ára afmæli hjá Kristínu píku.. Það verður AWESOME ferð held ég í alla staði :)

( þessi pistill gæti innihaldið fullt af stafsetningarvillum, innsláttarvillu já og eða fullt af orðum sem eru einfaldlega ekki til.  þá bara verður svo að vera, ritarinn gerði sitt allra besta í að henda einhverju niður í flýti :) ) 


Þangað til næst :)






Skrifað 16.3.2010 kl. 14:21 af Berglind

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

10.3.2010

Tætum og tryllum !!

Jæja held að það sé algjörlega komin tími á blogg... Síðan mín var meira að segja runninn út en ég hef ákveðið að halda henni áfram, finnst leiðinlegt samt hvað bloggheimurinn er eiginlega hruninn eftir að facebook tröllreið heiminum. En ég hef heyrt svona útundan mér að fólki finnist gaman að lesa bloggið mitt og fylgjast með því sem ég er að gera og því hef ég ákveðið að halda þessari síðu áfram.


Er þá ekki best að byrja þetta bara svona.... Í fréttum er þetta helst.......


Ég skellti mér til Raufarhafnar á þorrablótið 6 feb. Þetta var stutt en hrikalega skemmtileg ferð og þorrablótsnefndin stóð sig heldur betur vel. Fannst þetta alveg magnað hjá þeim .Ég skældi fullt af gleðitárum vegna of mikils hláturs að make up var nánast farið þegar Greifarnir stukku á stokk með fyrsta lag kvöldsins Útihátíð.  Greifarnir stóðu sig einnig vel og skemmti  ég mér alveg hrikalega vel.  Tók nátturulega dansinn við Nabba Gunn sem er fastagestur á danskortinu mínum og var dansinn svo svakalegur að toppurinn sem ég var í tættist af mér og þurfti kjella að skunda heim og skipta um föt.  Öll fjölskyldan mín fór á blótið og er það í fyrsta skiptið á ævinni sem við förum öll saman á svona skemmtun.  Mamma varð 70 ára 10 feb og vildi ekki halda neina veislu, þannig hún eiginlega missti sjálfræðið þennan dag og var eiginlega bara skipað á blót, sá hún ekkert eftir því, því ég held að hún hafi  skemmt sér manna best og var á ballinu alveg til 3:00 um nóttina. Hefði sjálfsagt verið lengur en sá sig eiginlega bara tilneydda til að fara heim eftir mjög svo mikinn barnaskaps sem átti sér stað við borðið okkar  og setti svartan blett á þessa skemmtun, sem mér þykir miður. En svona er þetta !


12 febrúar var svo frumsýndur Wipeout þátturinn minn á Stöð 2. Eftir mikinn kvíðahnút í maganum allan feb mánuð þá var ég bara nokkuð sátt með útkomu mína í þættinum. Var bara meira að segja pínu stollt af mér, vissi alveg að mér hafi gengið ágætlega, en ég mundi samt ekki alveg allt eða hvernig ég fór í gegnum sumar brautirnar. Nokkuð gott J Fannst samt leiðinlegt að það hafi aldrei komið fram að ég væri frá Raufarhöfn þar sem ekkert viðtal við mig var sýnt. En þeir sem þekkja mig vita að ég er stolltur Raufarhafnarbúi og var mjög hrærð þegar ég frétti að boltaloftið hafi verið stúfullt af fólki með skilti og ég veit ekki hvað og hvað að horfa á mig í sjónvarpinu hehehe.. Stuð !




Svo í feb tók ég þá ákvörðun að ganga í gönguhóp á vegum 365. Áætlar er að gana Hvannadalshnjúk 8 maí og hófust æfingar í byrjun feb.  Það gengur alveg ágætlega, er búin að labba Hengil 1x og Esjuna 1x. Vegna veðurs höfum við ekki getað gengið meira. Það er alltaf farið á sunnudagsmorgnum og það vill nú bara þannig til að alla þessa sunnudaga sem planaðir eru hefur verið hundleiðinlegt veður og nýbúið að snjóa, halló það hefur ekkert snjóað í Rvk en þessar helgar, júbb !




20 febrúar hittust hóparnir sem fóru út saman í Wipeout.  Ég og Hans Steinar tókum að okkur að undirbúa partýið og Bjössi í World Class var svo elskulegur að bjóða okkur til sín í baðstofuna og bauð svo uppá hamborgara og bjór eftir fína slökun í pottinum. Síðan lá leið okkur á Englishpub þar sem var boðið uppá allskyns "wipeout" tilboð og slideshow frá ferðinni sýnt.... Svo var dansað burtu allt vit á Austur.  Þetta var alveg magnað kvöld og gaman að hitta hópinn aftur og skemmta sér saman, þar sem við gerðum ekkert af því úti. Vorum stilltasti hópurinn og er það engin lýgi :)



( Fleiri myndir í almbúinu :) )

Þetta er svona það helsta sem hefur verið að gerast hjá mér undanfarið, en mikið á eftir að ské. Eins og Árshátíð 365 um næstu helgi. Píkuferð á Blönduós í 30 ára afmæli Kristínar. Fullt af göngum. Páskarnir á Egilsstöðum og margt, margt fleira :)



Stay tuned !!


Skrifað 10.3.2010 kl. 13:04 af Berglind

Bein slóð á færslu

11 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 3835
Gestir í dag: 18
Flettingar í gær: 156
Gestir í gær: 10
Samtals flettingar: 557405
Samtals gestir: 27030
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 15:07:05

Vafraðu um

Celine Dion í Köben

atburður liðinn í

1 ár

9 mánuði

15 daga

Þjóðhátíð í Eyjum

atburður liðinn í

1 ár

7 mánuði

20 daga

Stelpan sjálf..

Nafn:

Berglind Mjöll

Farsími:

im not gonna tell

MSN netfang:

spurðu bara.....

Afmælisdagur:

27 júní

Heimilisfang:

Hraunberg 11

Staðsetning:

Reykjavík

Heimasími:

..........................

Móðir:

Guðný Baldursdóttir

Önnur vefsíða:

www.facebook.com/

MySpace vefsíða:

www.myspace.com/bellamjolla

Um:

Betra er autt rúm en illa skipað

Uppáhalds bíómynd(ir):

10 things i hate about you og How to Lose a Guy in 10 Days-Love it ...Og flest allar spennumyndir

Uppáhalds tónlist:

Alæta á tónlist...

Uppáhalds manneskjur:

Bylgja systir,mamma mín Guðný og Olga :)

Uppáhalds matur:

Rjúpur,humar og pasta

Eftirminnilegast:

Wipeoutferðin !!

Tenglar