Allt sem þú lest er lygi

Betra er autt rúm en illa skipað

Blogg

"Betra er autt rúm, en illa skipað"

28.7.2008

Fullt af myndum

Vá brúðkaupið var æði,æði æði út í eitt.. Þúsund þakkir fyrir mig Sif og Siggi. Þetta var frábært brúðkaup í alla staði..
Er búin að setja inn fullt af myndum og ég ætla bara að leyfa þeim að tala sínu máli.
Hef engan tíma fyrir blogg núna, á meðan ég er í sumarfríi :) hehe..
Svo bara eyjar eftir 2 daga.... vú hú :)
Og stelpan klippti af sér hárið, gerði nánast eins og mynd 2 hér að neðan. Sleppti samt liðinum, en var með rullur í brúðkaupinu þannig klippingin sést kannski ekkert voðalega vel, en það sést hversu stutt ég fór :) Er sko súper ánægð með þessa ákvörðun mína :)

Nanna mín, innilega til hammó með ammó í gær :) kiss kiss

Skrifað 28.7.2008 kl. 21:48 af Berglind

Bein slóð á færslu

7 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

22.7.2008

Breytt útlit eða ????

Þá er maður komin í sumarfrí, og ég verð að segja að það er pínu ljúft. Eiga smá tíma fyrir sjálfan sig, ekki bara vinna og vinna :) Er komin til Egilsstaða og ég bara verð að viðurkenna það, að þegar ég keyrði út úr bænum í dag þá kom alveg tár. Mér fannst mjög leiðinlegt að vera að fara og ekki alveg vita hvenær ég kem aftur. Þetta var of stutt stopp að mínu mati, þó ég hafi verið þarna í 5 vikur...


Mér langar svo að gera eitthvað róttækt við hárið á mér. Á tíma í klippingu á föstudaginn næsta, og ég er svona að velta ýmsu fyrir mér... Er nú búin að vera það róttæk að lita það einu sinni dökkt, þannig ég ætla ekki að gera fleiri litabreytingar á því. Er svona að spá í klippingar. Er mikið búin að horfa á myndir með Reese Witherspoon í sumar og hárið á henni í tveim myndum er alveg að heilla mig.. En ég veit ekki... Mér finnst agalega gott að hafa hárið bara sítt, og stundum ekki að þurfa neitt að hafa fyrir því. Bara henda því í tagl þegar það liggur þannig á mér.. Einnig finnst mér fara mér alveg andskoti vel að vera bara með sítt hár...  Kannski er einhver hræðsla í mér að klippa það, slæmar minningar frá því ég var barn hehe.. þar sem ég var stuttklippt með brodda lengi vel..


Eins og td hérna, nema ég er að reyna að vera pæja með spöng :)

Sjá Bylgju yndislegu og langfallegustu systir mína ( hún neyddi mig til að skrifa þetta )


En hvað finnst ykkur.. á maður að prufa eitthvað nýtt, eða bíða með þangað til maður verður 30 ára eins og Svava með að klippa síða hárið af :)  ( ég veit þetta vex aftur, en það tekur bara svo andskoti langan tíma :) )
Þetta eru klippingarnar sem ég er að spá í ...


Mjög stutt.... að mínu mati, en samt ógeðslega töff klipping...



Eða þessi, aðeins síðara á henni hárið ...  Ég myndi jafnvel láta setja í mig svona liði.



Eða bara vera áfram eins og ég er..

 

Skrifað 22.7.2008 kl. 23:50 af Berglind

Bein slóð á færslu

12 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

21.7.2008

Allt tekur einhvern tíman enda....

Jæja þá er vinnandi sumarfríið mitt á Raufarhöfn búið. Og er þetta "frí" mitt búið að hafa sína kosti og galla. Miklu fleiri kosti samt.

 Kostir...

  •  Ódýrt að vera á Ríben í kreppunni. Er eiginlega ekki búin að eyða krónu hérna.
  • Og Bensínið haggast varla, þó ég keyri alltaf í og úr vinnu og ekki eru vegalengdirnar langar.
  • Er búin að ná að ferðast helling og gera helling, sem ég hefði ekki gert ef ég hefði verið fyrir sunnan.
  • Fór á Egilsstaði.
  • Fór á íþróttamót í Ásbyrgi.
  • Hélt upp á afmælið mitt í góðum hópi og fékk gesti að sunnan í heimsókn.
  • Skjótast inná Akureyri í verslunarferð.
  • Hef náð að safna smá pening.
  • Hef fengið þann unað að geta hent mér í heita pottinn hjá Olgu og Ragga í tíma og ótíma.
  • Fá mömmumat á hverju kvöldi.
  • Eyða góðum tíma með fjölskyldunni.
 
Ókostir

  • Veðrið er ekki búið að vera uppá sitt besta.
  • Er búin að vera að deyja úr leti, þegar vinnudeginum líkur..
  • Ekki hreyft mig eins mikið og ég ætlaði mér.. ( kenni veðrinu um )
  • Ekki geta hitt píkurnar mínar þegar píkuhittingur er.
  • Hjálpa Ölmu minni að anda inn og anda út. ( er að farast úr stressi þessa dagana ) msn ið hefur samt hjálpað mikið.

 En það er búið að vera algjör sæla samt að vera ekki í neinu stressu hérna síðasta mánuð og alveg nauðsynlegt að komast aðeins út úr sinni venjulegu rútínu.

Þetta er annað sumarið mitt, sem ég tek að mér að vinna á Raufarhöfn, og held ég að þetta verði alveg að föstum lið hjá mér svo framanlega sem vinnuveitendur mínir í Rvk leyfa mér að taka svona langt frí.
Ég er nú ekki viss um að öll fyrirtæki myndu taka þetta í mál. Þannig mér finnst vera algjör forréttindi hvað ég vinn hjá góðu fyrirtæki :)

 Annars er ég að fara í smá sumarfrí, sem verður bara fyrir mig. Engin vinna neitt. En ég byrja aftur að vinna hjá 365. 6 ágúst.

En það sem framundan hjá mér í fríinu er, að fara til Egilsstaða í 2 daga eða svo. Keyra suður til Rvk á fimmtudaginn 24  júlí. Fara í brúðkaup 26 júlí til Sif og Sigga. Fara á þjóðhátíð 30 júlí og vera þar í 6 daga. Þá er bara fríið búið í bili...  Og blákaldur veruleikinn byrjar aftur. Og ég get ekki alveg hrópað húrra fyrir þvi. Margt sem ég þarf að skoða og pæla í... Nenni ekki pælingum og veseni.... djöf.......

 Alveg ótrúlegt hvað þetta sumar er alltaf fljótt að líða miða við hvað veturnir eru lengi.. andsk.. það ætti að snúa þessu við.....

 Jæja búin að pústa aðeins. Vil svona í leiðinni óska Ylfu Lind til hammó með frumburðinn sinn. Lítill strákur leit dagsins ljós 16 júlí. Benedikt Bent,Kollu Björg,Gumma Guðjóns til hammó með ammó 17 júlí. Og að sjálfsögðu nýjasta píkubarninu þeirra Nönnu og Freys sem kom í heiminn 20 júlí. ( hélt samt að stúlkan þeirra myndi koma 27 júlí. Nanna og Eva voru settar sama dag, 17 júlí síðasta. En ég held mig þá enn við að Eva komi með sitt 27 júlí og það verði stelpa :)  Svo fer þetta allt að koma hjá hinum sem ég þekki sem eru óléttar, held að það sé nánast barn eða jafnvel börn í hverjum mánuði framm að jólum :)

Elsku Friðgeir þakka þér kærlega fyrir samstarfið í sumar, það var algjört æði að vinna með þér :)  Aldrei að vita nema við leikum bara sama leikinn að ári :)

 

Skrifað 21.7.2008 kl. 17:13 af Berglind

Bein slóð á færslu

6 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

20.7.2008

Stúlkan er fædd




Elsku Nanna María og Freyr.
Innilega til hamingju með stúlkuna ykkar :)
Stór,stæðileg og heilbrigð og pottþétt gullfalleg, ef hún er lík foreldrum sínum :)
Hlakka til að sjá ykkur sæta fjölskylda, kem beint í heimsókn þegar ég kem suður :)

Skrifað 20.7.2008 kl. 17:08 af Berglind

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

17.7.2008

Þjóðhátíð eftir 13 daga...

Það eru ekki nema 13 dagar þangað til ég legg af stað til Eyja. Ég,Alma og Árni erum að fara að taka sko 6 daga þjóðhátíð :) Geri aðrir betur :) Bylgja systir kemur svo til okkar á fimmtudeginum. Það eru alveg rosalega margir að fara í ár, sem maður þekkir.. Þannig ég sé fram á alveg snilldar þjóðhátíð. Og fyrir þá sem eru að fara þá er alveg nauðsynlegt að kunna þetta lag :)

Brim og Boðaföll. 2008

Am-F-C-G
Am-F-C-G

Am                   F
Sól, lýstu mína leið,
                          C                         G
svo logi sundin blá, á leiðinni til þín.
Am                           F
Nótt, leiðin verður greið
                          C                                           G
Mér liggur lífið á, því ég verð senn á leiðarenda.


F             C        G
Kominn þessa leið,
                  F          C        G
Einfaldlega til að segja þér,
                     F            C        G
Án þín er ég bjargarlaus í neyð,
                         F        C         G
En ekki þegar þú ert hér hjá mér.

Am                                 F
Fyrst, er augum á þig leit,
                               C                                        G
þá innra með mér fann, að eitthvað snerti mig.
Am                                F
Þá, og eins vel nú ég veit,
                           C                                         G
að brim og boðaföll, gætu ekki stöðvað okkur.

F             C        G
Kominn þessa leið,
                  F          C        G
Einfaldlega til að segja þér,
                     F            C        G
Án þín er ég bjargarlaus í neyð,
                         F        C         G
En ekki þegar þú ert hér hjá mér.

 
Dm                     Am                             Dm
Nú, nóttin læðist inn, og breiðir út sinn faðm,
                           Am       G           F
Þú brosir til mín eins og í fyrsta sinn,
                    C                        G
lífið byrjar hér, inn í Herjólfsdal

 

F             C        G
Kominn þessa leið,
                  F          C        G
Einfaldlega til að segja þér,
                     F            C        G
Án þín er ég bjargarlaus í neyð,
                         F        C         G
En ekki þegar þú ert hér hjá mér.



HÉRNA ERUM VIÐ STÖLLUR ÁRIÐ 2006 ...



SVONA VORUM VIÐ STÖLLUR Í STÍL ÁRIÐ 2006.. VERÐUM MIKLU FLOTTARI Í ÁR :)



ÞAÐ VAR BARA GAMAN HJÁ OKKUR ÁRIÐ 2006





Skrifað 17.7.2008 kl. 10:05 af Berglind

Bein slóð á færslu

10 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

15.7.2008

Sigur á ásbyrgismótinu

Skoða nánar

10.7.2008

Ásbyrgi er málið um helgina

Skoða nánar

9.7.2008

Mikil átök í nótt

Skoða nánar

7.7.2008

Helgin var bara snilld.....

Skoða nánar

3.7.2008

Ferðalag

Skoða nánar

2.7.2008

Þreyta og veðrið...

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 9801
Gestir í dag: 40
Flettingar í gær: 156
Gestir í gær: 10
Samtals flettingar: 563371
Samtals gestir: 27052
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 20:50:38

Vafraðu um

Celine Dion í Köben

atburður liðinn í

1 ár

9 mánuði

15 daga

Þjóðhátíð í Eyjum

atburður liðinn í

1 ár

7 mánuði

20 daga

Stelpan sjálf..

Nafn:

Berglind Mjöll

Farsími:

im not gonna tell

MSN netfang:

spurðu bara.....

Afmælisdagur:

27 júní

Heimilisfang:

Hraunberg 11

Staðsetning:

Reykjavík

Heimasími:

..........................

Móðir:

Guðný Baldursdóttir

Önnur vefsíða:

www.facebook.com/

MySpace vefsíða:

www.myspace.com/bellamjolla

Um:

Betra er autt rúm en illa skipað

Uppáhalds bíómynd(ir):

10 things i hate about you og How to Lose a Guy in 10 Days-Love it ...Og flest allar spennumyndir

Uppáhalds tónlist:

Alæta á tónlist...

Uppáhalds manneskjur:

Bylgja systir,mamma mín Guðný og Olga :)

Uppáhalds matur:

Rjúpur,humar og pasta

Eftirminnilegast:

Wipeoutferðin !!

Tenglar