|
Allt sem þú lest er lygi Betra er autt rúm en illa skipað |
|
Blogg"Betra er autt rúm, en illa skipað" 26.8.2008Silfur er hið nýja gullAllt og ekkert er búið að ské undanfarið hjá mér.. Þannig mér hefur fundist alveg tilgangslaust að blogga.. Enn þó mér finnist þessi blogg mín vera tilganslaus er alltaf einhverjir sem hemta af manni blogg og verður maður ekki að verða við þeirri bón :) Í síðustu viku gerði ég nánast ekkert annað en að vinna og sofa. Fékk samt að fara með vinnunni í smárabíó á fimmtudaginn. Fékk að fara með Þóru minni og markaðsdeildinni í hádeginu til að horfa á fyrsta þáttinn af Ríkinu og Dagvaktinni. Hinir helstu strumpar voru staddir þarna og sat ég mitt á milli Jón Gnarrs og Ödda Blö hehe.. Nei kannski ekki alveg.. En þeir voru þarna... Fengum popp og kók með þáttunum svo hvítvín og indverskan mat eftir bíóið.. Þjónustuverið fékk svo að fara kl 4 og 5 og þá vann ég bara á meðan :)
Eitthvað er ég búin að heyra neikvæðar raddir um fyrsta þáttinn af Ríkinu og ég er ekki sammála þessum neikvæðu röddum. Mér finnst yfirleitt svona sjónvarpsþættir leiðinlegir, skiptir ekki máli hvort þeir séu íslenskir eða erlendir. Ég t.d hef aldrei verið spennt fyrir little britain ( hef ekki hugmynd um einu sinni hvernig þetta er skrifað ) En mér fannst Ríkið fyndið, ég allavegana hló alveg ágætlega mikið. Ekki mikið um kúk og piss brandara eða aðra neðan beltisstaðs brandara sem ég þoli ekki í svona þáttum, finnst alltaf einum of mikið af þeim bröndurum, þó þeir séu alveg fyndnir annað slagið þá er alveg annað fyndið líka. Ég ætla allavegana að gefa þeim séns og ég vona að neikvæðu raddirnar geri það líka. Því ég er búin að lofa að gefa litle britain tækifæri.. Ég held að Dagvaktin eigi eftir að slá í gegn í vetur. Dálítið öðruvísi að byrja að horfa á þá aftur, þar sem þeir eru komnir í allt annað umhverfi og komnir í allt aðra stöðu í lífinu.En ég held að þeir verði allvegana ekki síðri en Næturvaktinn.. Ég allavegana hlakka til að horfa á afganginn..Fyrsti þátturinn var nefnilega góður en ég held að þeir eigi eftir að verða betri. Ég hlakka sérstaklega mikið til að sjá vin minn Júlíus Brjánson leika í þeim :) Maðurinn er nefnilega snillingur :)
Menningarnótt var þrælskemmtileg. Hélt partý í kóngsbakkanum og það kom alveg fullt af fólki og gleðinn var langt fram á nótt. Fórum svo niðrí bæ á Apótekið og þá splundraðist hópurinn aðeins. Ég og Gyða fórum svo á pizza king og beint heim um 6 leytið. Og vöknuðum "sprækar" kl 7 þegar Íris sótti okkur til að fara í smáralind í morgunmat í boði 365 og horfðum á leikinn í smárabíó. Geggjaður leikur þó betri hefði mátt fara og hann hefði alveg getað það ef Frakkar ættu ekki þennan járnkarl sem þeir voru með í markinu. Hann eiginlega færði Frökkum gullið En halló, hvaða íslendingur er samt ekki sáttur við silfrið á Ól. Ég var það allavegana :)
Fullt af fleiri myndum komnar inn .....
21.8.2008Fannst þetta mjög viðeigandiStjörnuspá dagsins.... Passar vel við að mér finnst.. Krabbi: Lífið hlýðir ekki skipunum þínum. Það er líkist meira uppreisnargjörnum unglingi en einkaþjóni. Framtíðin kemur þegar og eins og henni sýnist. 19.8.2008Helgin eins og hún lagði sig...Helgin var alveg hin ágætasta...... Notaði föstudagskvöldið í tiltekt í Kóngsbakkanum með aðstoð Sifjar. þannig það er allt glimmrandi hreint og fínt þegar Gunni sambó kemur heim í næstu viku :) Svo var grillveisla hjá 365 dagvaktinni á laugardagskvöldinu. Herlegheitin voru haldin hjá Gísla. Hrikalega flott aðstæða fyrir útigrillveislu. Það var alveg hrikalega gaman og er ég búin að henda inn fullt af myndum :) ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() 16.8.2008Ammæli í dag.....16 ágúst 2005 kl 17:30 kom fallegasta og bestasta barn í heimi í heiminn. Lét reyndar bíða aðeins eftir sér og tók uppá því að stríða Biddu frænku aðeins og kom í heiminn 2 dögum eftir að ég fór frá Ak, þá búin að bíða eftir honum í 2 vikur. Og hann hefur ekkert látið af þessari stríðini, notar hana óspart þegar við hittumst :) Í dag 16 ágúst 2008 er uppáhaldsfrændinn minn orðinn 3ja ára gamall. Elsku fallegasti og yndislegasti Unnar Karl. Innilegar hamingjuóskir með daginn í dag.. Sendi þér svo riiiiiiiiiiiiiiiiiiiiisa pakka í næstu viku :) Verð klárlega að vera uppáhaldsfrænkan :) híhí... Kiss kiss og rissssssssssssssa knús :) Unnsi Kalli nýfæddur ![]() Orðinn 1 árs... ![]() 2ja ára ![]() 3ja ára guttinn minn :) ![]() 14.8.2008Lítið svo sum að frétta......Fólk er eitthvað farið að kvarta yfir blogginu, vill fara að fá nýja færslu. Ástæða fyrir því að ekkert blogg sé komið, er svona einfaldlega því það er ekkert til að blogga um..... En ég skal láta á það reyna.... Þetta er svona það helsta sem hefur verið að gerast hjá mér...... Er búin að vera að vinna mjög mikið síðan ég kom úr fríi.. money honey :) -Fór í bíó um daginn á Dark Night.... mér fannst myndin öll mjög góð í alla staði. Var eitthvað búin að heyra að hún væri of langdreginn og hún væri ekkert án Heath heitins Legder. En þó hann hafi reyndar staðið upp úr í þessari mynd, þá var myndin í heild sinni mjög góð að mínu mati. fær alveg 4 stjörnur hjá mér af 5 :) -Gay pride... færsla komin um það.... -Sækja Olgu og co til Kef... -Píkuhittingur hjá Nönnu. Loksins í langan tíma hittumst við allar. Kolla.Karen.Kristín.Særún.Nanna.ég og Habba. það var mjög gaman, gat ekki hætt að horfa á fallegasta barn ever, Nönnudóttir, hún lá mest allan tíma sofandi í fanginu á manni, nema þegar hún fór að leita á mann og þenja raddböndin, því hún var ekki að finna neitt skemmtilegt á manni :) - Taka til og þrífa í Kóngsbakkanum. Er ein í kotinu. Gunni fór norður í smá frí í 2 vikur og Ingunn ætlar að vera á Ríben fram að áramótum. -Svo er bíóferð í kvöld með Þóru og fleirum á mamma mia. -Og vinnudjamm á laugardagskvöldið með dagvaktinni :) Kemur færsla og sjálfsagt myndir frá því þegar það er búið að gerast :) :) Annars vil ég bara óska henni Elvu minni og Árna til hammó með prinsessuna sem fæddist 05:45. Ákveðin ung dama sem kom nákvæmlega á þeim degi sem hún átti að koma. Hún var 3510 gr. 50 cm eða 14 merkur... Innilega til hamingju elskurnar :) kiss kiss Einnig í dag eru 9 ár síðan Ragnar Már ( Boyzen ) lést. Vá hvað tíminn er fljótur að líða, 9 ár... Mér finnst eins og það hafi gerst í gær. Að hann svo fallegur og ungur hafi verið tekin frá okkur í blóma lífsins. sakna þín sárt kæri vinur... Flettingar í dag: 3835 Gestir í dag: 18 Flettingar í gær: 156 Gestir í gær: 10 Samtals flettingar: 557405 Samtals gestir: 27030 Tölur uppfærðar: 20.3.2010 15:07:05 |
Vafraðu um![]() Celine Dion í Köben atburður liðinn í 1 ár 9 mánuði 15 daga Eldra efni Stelpan sjálf.. Nafn: Berglind MjöllFarsími: im not gonna tellTölvupóstfang: berglind_mjoll@hotmail.comMSN netfang: spurðu bara.....Afmælisdagur: 27 júníHeimilisfang: Hraunberg 11Staðsetning: ReykjavíkHeimasími: ..........................Móðir: Guðný BaldursdóttirÖnnur vefsíða: www.facebook.com/MySpace vefsíða: www.myspace.com/bellamjollaUm: Betra er autt rúm en illa skipaðUppáhalds bíómynd(ir): 10 things i hate about you og How to Lose a Guy in 10 Days-Love it ...Og flest allar spennumyndirUppáhalds tónlist: Alæta á tónlist...Uppáhalds manneskjur: Bylgja systir,mamma mín Guðný og Olga :)Uppáhalds matur: Rjúpur,humar og pastaEftirminnilegast: Wipeoutferðin !!Tenglar
|