|
Allt sem þú lest er lygi Betra er autt rúm en illa skipað |
|
Blogg"Betra er autt rúm, en illa skipað" 27.11.2008Heppni eða kraftaverk !!Ég myndi segja að ég væri trúuð, veit samt ekki hvort ég trúi á Guð eða að Guð sé einhver maður í hvítum kjól með brúnt langt skegg. En ég trúi á eitthvað æðra, að það séu einhverjir æðri máttar sem fylgja okkur. Ég vill allavegana trúa því frekar heldur en á heppni. Held að heppin eigi ekki við í þessu. Það var nefnilega þannig að síðasta sunnudag um kvöldmatarleytið þá fékk ég símtal frá Guðnýju þar sem hún tilkynnti mér það að mamma, Olga, Nanna og Friðrik hefðu lent í bílslysi. Og ég held að svona fréttir séu þær verstu sem maður getur fengið, þegar einhver nákominn manni og ég tala nú ekki um fjölskyldan manns lendir í einhverju svona. Hún vissi lítið annað en að það væri haldið að þau væru ekki mikið slösuð. Þannig ég kvaddi og fór að hringja heim og láta pabba vita án þess að vita eiginlega ekki neitt sjálf og hringja svo í þær til að athuga hvað hafi komið fyrir og hvernig staðan væri á þeim. Þá var sem sagt alveg fljúgandi hálka og bílinn byrjar að slæda sem verður til þess að þau fara útaf og lenda í eina og hálfa veltu. Enduðu sem sagt á hliðinni farþega meginn. Þau lentu í þessu óhappi rétt fyrir utan Þórshöfn og sjúkrabílinn kom og sótti þau þangað og fór með þau í skoðun og keyrðu þau svo áleiðis til Raufarhafnar. Það var eitthvað æðra þarna vil ég meina sem passaði það að þau slösuðust eiginlega ekki neitt, að þetta hafi ekki verið heppni. Því þau hefðu kannski verið heppinn ef þau hefðu ekki farið út af. En þau fóru út af og slösuðust nánast ekki neitt, það tel ég ekki hafa verið heppni heldur þarna hafi eitthvað eða einhver sem hafi vakað yfir þeim og passað þau svona svakalega vel. Bílinn er töluvert skemmdur og marblettir eru nánast það eina sem hrjáir þau. Nanna er eitthvað meidd á baki og er hugsanlega bara tognuð, en það kemur betur í ljós á næstu dögum ef henni fer ekki batnandi. Núna hafa sem sagt ég, Bylgja, Brynjar, Olga, Nanna, Friðrik og mamma öll lent í bílslysi og öll staðið frá þeim nánast ómeidd og tel ég að í öllum þessum tilfellum verið eitthvað eða einhver passað okkur. Því eins og bílslysið sem ég lenti í á sínum tíma, var alveg hrikalega skelfilegt bílslys og ég eiginlega skil ekki hvernig ég og aðrir sem í bílnum vorum gengum í burtu nánast ómeidd. Og vona ég í komandi framtíð að þessi eða þetta sem er að passa upp á okkur, hættir því ekki..... 26.11.2008Jólahlaðborð með PíkunumHef ekki alveg tíma í að blogga núna... Hendi inn nokkrum línum samt....... Laugardagskvöldið síðasta var alveg geggjað... Þá var Jólahlaðborð með píkunum mínum og það var haldið heima hjá Írisi Kristins sem var að ganga þetta kvöld inní þennan geggjaða vinahóp. Kvöldið var æði frá A-Ö. Það var fordrykku, 2 forréttir, lamb og svín í aðlrétt, eftirréttur og drykkir fylgdu að sjálfsögðu með :) Spiluðum og tókum Særúnnu og írisi í inntökupróf fyrir píkurnar og enduðum svo á balli á Nasa með Skímó og var það ball flash back dauðans... Búin að henda inn fullt af myndum frá kvöldinu... Forréttirnir komnir á borð... ![]() Skál Píkur... ![]() Nanna. Moi. Habba. Kolla. Íris og Særún... ( vantar kristínu og kareni ) ![]() Píkurnar á balli með Skímó á Nasa ![]() Takk stelpur fyrir alveg yndislegt kvöld... 21.11.2008London is off......Kemur kannski engum á óvart að Londona ferðin okkar Þóru er off.. Reyndar er svolítið langt síðan að við tókum þá ákvörðun að hætta við og stöndum við alveg við þá ákvörðun. Því ég hugsa að ef við hefðum farið þyrftum við að lýsa okkur gjaldþrota eftir hana. En það gæti samt farið svo að þetta sé tapað gjafabréf. Erum að reyna að fá ferðina okkar til baka og mun það koma í ljós næstu viku hvort það gangi upp eða ekki. Fyrir mánuði síðan eða svo voru miklar líkur á því að við myndum fá gjafabréfin aftur en þar sem kreppan er orðin miklu meira núna en þá, þá er bara ekkert víst að þeir leyfi okkur að fá þau til baka. Þannig gjafabréfið sem náði akkurat fyrir ferðinni er hugsanlega tapað og verður það þá bara að vera þannig... Ekki nema einhver sem les þetta blogg langi til að skjótast til London í 5 daga fyrir nánast ekki neitt... Ég var búin að fá frí í vinnunni til að fara í þessa ferð og var ég að afturkalla það frí nema einn dag. Ætla að vera í fríi föstudaginn 5 des, því þá koma Guðný, Bylgja, Unnar Karl, Olga og Nanna til Reykjavíkur og ætla ég bara að fara í Smáralindina í staðinn þar sem ég þarf engan gjaldeyri eða vegabréf :) Annars er bara fínt að frétta, er eiginlega alveg búin að koma mér fyrir í nýja herberginu mínu. Búin að setja saman nýja fataskápinn minn sem var algjört ævintýri. Keypti sem sagt skáp í RL búðinni í Skeifunni á þriðjudaginn eftir vinnu, þurfti svo að sækja hann sjálf í vörumóttöku RL búðarinnar í Kópavogi, fór með hann svo heim og byrjaði að setja saman stóru hlutina og opnaði svo minni kassann nei nei þá var platan þar sem er botninn á skápnum brotinn. Frábært og kl orðin 19:00 og búið að loka. Jæja íris býðst til að fara með hann fyrir mig í RL búðina daginn eftir til að fá nýjan, sem hún gerir nema starfsmennirnir þar töluðu ekki stakt orði í íslensku né ensku. Þannig eftir einhvern tíma í útskýringum þá létu þeir hana fá nýjan kassa og spurði hún marg oft hvort hann væri ekki örugglega brúnn en ekki hvítur, og þeir héldu það nú. Jæja hún fer með hann heim og opnar hann fyrir mig til að ath hvort hann sé ekki örugglega brúnn, nei nei hann var hvítur. DÍSES.. Þannig hún hringir í RL búðina ekki sátt með starfsmennina í vörumóttökunni. Strákurinn sem hún talar við er mjög skilningsríkur á þetta allt saman og segist sko bara geta reddað þessu fyrir hana, þeir bara skutli til hennar nýrri pakkningu. Ok frábært segir Íris.. já en það verður kannski á morgunn eða hinn... HALLÓ........ Veit ekki hvort þetta sé góð þjónusta eða ekki. Jú jú strákurinn var allur að vilja gerður að bæta þetta upp, en bara ekki strax. Jæja þau komust að samkomulagi, hann skildi hringja til "útlanda" þ.e.a.s til vörumóttökunar í Kópavogi og fá þá til að hafa þetta til, rétta skápinn. Þannig hún skundar aftur til þeirra og allt gékk upp. Þannig þegar ég kom heim úr vinnu þá gat ég farið á fullt að setja hann saman og gekk það bara ágætlega, smá svona ves og annað en það gekk.. Reyndar smá vesen..................... ég get lokað honum en hurðarnar eru ekki í sömuhæð... FJANDINN...... og hef ég ekki hugmynd um hvernig ég á að geta sett þær í sömu hæð, er búin að reyna að ég held allt.... þannig ÞÚ sem ert að lesa þetta og ert handlaginn á hurðar á fataksápum, þá ertu velkomin í heimsókn til að fixa þetta fyrir mig :) :) :) :) En þrátt fyrir að hurðarnar séu ekki í sömu hæð, þá ætla ég samt að fara "heim" í Kóngsbakkan í dag og klára að sækja dótið mitt og fötin mín og nýta föstudagskvöldið í það að raða inní hann :) Góða helgi :) 19.11.2008Er að komast í jólaskap....Það mætti halda að það væri ekki kreppa hjá mér svona miða við djömminn síðustu helgar. Er búin að vera frekar dugleg að tjútta undan farið og ég sé ekki eftir neinu þeirra. Búið að vera alveg hrikalega gaman. En allt kostar þetta víst peninga og er ég búin að vera frekar lánssöm á djömmunum mínum undan farið, kostnaðurinn er eiginlega engin búin að vera. Þökk sé Írisi Ósk sem bauð mér á greifaballið og var bílsstjóri, Hauk sem bauð mér á Móti sól ballið, Þökk sé Halldóru fyrir að keyra mig heim, þökk sé Sif fyrir að ráða mig sem gigalo. Þannig á meðan boðin standa til boða þá segir maður ekki nei :) Þannig takk elskurnar fyrir mig :) :) Og þessum djömmum hjá mér er ekkert að fara að ljúka því næstu helgi er jólahlaðborð með Píkunum og ný píka tekin í hópinn og fær hún þann heiður að halda þetta heima hjá sér og er von á því að það brjótist út eitthvað tjútt eftir singstar, achonary og nokkra mohito... En kreppan er alveg að taka sinn toll hjá mér eins og svo mörgum öðrum en ég er samt þakklát fyrir að hafa vinnu, eiga góða að og eiga ekki í fjárhagslegum vandræðum eins og svo margir aðrir... Ég er komin með alveg gríðarlega löngun í að komast í jólafrí, veit ekki hvað það er en ég eiginlega get ekki beðið eftir að komast í frí og fara heim. Kannski er ég bara komin með skammtímaþunglyndi eins og ég sagði við Olgu og hló hún mikið af því. Eins og fólk sem þekkir mig best veit að orðaforðin minn er one of a kind og átti þetta að sjálfsögðu að vera skammdegisþunglyndi en ekki skammtíma þó mér hafi nú ekki fundist neitt athugavert við þetta orð því ég þjáist ekki af langtímaþundlyndi hehehehe........ En málið er að ég er eiginlega alltaf þreytt núna undan farið og bara frekar löt. Kannski spilar það eitthvað inní að ég er ekki að vinna eins mikið og ég hef verið að gera síðustu 3 mánuði og þreytan frá því farin að taka sinn toll. Kannski er það út af því að það birtir nánast ekki neitt núna úti. Eða þá að mér líður bara svona vel í nýju íbúðinni minni í nýja herberginu mínu og sef í rúminu mínu. Að ég bara vilji ekki fara út. Veit ekki, en eitthvað er það og er von á miklum breytingum á næstu dögum .... Þessi djömm mín hafa ekkert með þessa þreytu að gera, svo það sé nú frá :) hehehe.... Því ég veit að orkan fer í fullt þegar allt liðið mitt kemur suður fyrstu helgina í des. En Bylgja systir, Unnar Karl hugsanlega, mamma Guðný , Olga og Nanna koma í bæinn.. Fæ alltaf auka orku þegar ég er innan um fjölskylduna. Þannig ég ætla ekki að kvarta þó peningurinn sé fljótari að fljúga núna en áður. En þrátt fyrir þessi djömm uppá síðkastið og skammtímaþundlyndið er ég að alveg að komast í jólagírinn. Er frekar snemma í því þetta árið. Er meira að segja búin að kaupa jólagjafir handa Nönnu. Rósu. Friðrik Þór. Bylgju og hugsanlega í þessum töluðu orðum handa mömmu Rósu. Þannig það er langt komið með jólagjafalistan hjá mér :) 12.11.2008Tillitssleysi og dónaskapur.....Það er eitt sem fer alveg gríðarlega í taugarnar á mér og það er dónaskapur og tillitsleysi í umferðinni. Það fer ekkert eins mikið í taugarnar á mér og það.... Ég sýni alveg 90 % tillitssemi í umferðinni og sko alveg 100 % kurteisi. Þessi 10% sem ég skil eftir í tillitssleysi er að ég hleypi kannski 2 bílum en hætti að hleypa þegar 3 bílinn ætlar að komast, mér finnst ég vera búin að skila mínu. ( tek þetta sem dæmi ) Ég nefnilega lendi yfirleitt í þeirri stöðu þegar ég er búin að vinna að ég þurfi að koma mér frá skaftahlíðinni og út á miklubraut og yfirleitt alltaf hleypir mér engin yfir... Ok svo gerist það að það sé einn (pottþétt utan að landi maður ) sem hleypir mér inná en þá þarf ég að komast af hægri yfir á vinstri og það getur verið flókið mál þá byrjar dónaskapurinn. Ég set stefnuljósið á til að komast yfir á vinstri og umferðinn í rvk er sjaldan sú hægasta þannig ég hægi á mér og keyri eins og gömul kelling til að komast og þá byrjar fólk að flauta. Dónaskapur í mínum huga og algjört tillitssleysi. Ég segi það ekki að ég sé 100 % ökumaður, ég hef alveg svínað fyrir bíl og þá í er ég alveg í sjokki og rétti hendina svona út til að biðjast afsökunar en það hefur nú komið oft fyrir þegar ég fatta að ég hafi verið að gera eitthvað rangt og hjartað á mér gjörsamlega komið í brókina og hendina rétti ég út til að biðjast afsökunar þá fæ ég bara flaut og fokk jú merki til baka. Þetta er algjör dónaskapur að mínu mati. Hugsa að við höfum öll lent í þessum tillitsslausu og dónalegu í umferðinni og þeim fer ekkert minnkandi held ég þó að einn og einn eins og t.d ég sýnum tillitssemi og kurteisi í umferðinni. Þetta kostar ekki neitt að sýna þessa kurteisi og held ég að fólk sem kvartar undan kreppunni ætti að sýna þessa tillitssemi og kurteisi því hún kostar ekkert..... Annars fór ég í 30 ára afmæli á föstudaginn síðasta til Særúnar upp á Skaga, það var búningaþema og ógeðslega gaman. Takk fyrir mig elskan. búin að henda inn myndum.... Fór svo á Abbashowið á laugardagskvöldinu, hrikalega gaman nema myndavélin mín varð batterýslaus þannig ég á fáar myndir af því. En eftir showið fór ég á players í Kópavogi á ball með Greifunum og búin að henda inn nokkrum myndum frá því líka... Flettingar í dag: 13 Gestir í dag: 4 Flettingar í gær: 558 Gestir í gær: 28 Samtals flettingar: 553044 Samtals gestir: 26970 Tölur uppfærðar: 17.3.2010 03:02:16 |
Vafraðu um![]() Celine Dion í Köben atburður liðinn í 1 ár 9 mánuði 12 daga Eldra efni Stelpan sjálf.. Nafn: Berglind MjöllFarsími: im not gonna tellTölvupóstfang: berglind_mjoll@hotmail.comMSN netfang: spurðu bara.....Afmælisdagur: 27 júníHeimilisfang: Hraunberg 11Staðsetning: ReykjavíkHeimasími: ..........................Móðir: Guðný BaldursdóttirÖnnur vefsíða: www.facebook.com/MySpace vefsíða: www.myspace.com/bellamjollaUm: Betra er autt rúm en illa skipaðUppáhalds bíómynd(ir): 10 things i hate about you og How to Lose a Guy in 10 Days-Love it ...Og flest allar spennumyndirUppáhalds tónlist: Alæta á tónlist...Uppáhalds manneskjur: Bylgja systir,mamma mín Guðný og Olga :)Uppáhalds matur: Rjúpur,humar og pastaEftirminnilegast: Wipeoutferðin !!Tenglar
|