Allt sem þú lest er lygi

Betra er autt rúm en illa skipað

Blogg

"Betra er autt rúm, en illa skipað"

26.1.2009

Dagur 15 og áfengislaus helgi að baki....

Ég þakka kærlega fyrir utantekningarnar sem ég fékk á síðasta blogg. Gaman að sjá að þrátt fyrir facebookið sé búið að tröllríða landanum að það séu allavegana einhverjir ennþá þarna úti sem lesa hjá manni vitleysuna. Þannig ég ætla alveg að halda áfram, enda þarf ég sjálf einhvern stað til þess að pústa á og tjá mig :)

Ég er komin í dag 15 án sígarettu og dagur 5 sem ég er ekki með neitt hjálpartæki við að hætta að reykja. Þetta gengur enn eins og í sögu og þörfin verður alltaf minni og minni með hverjum deginum. Fór á djammið um helgina reyndar edrú  og ég fann enga löngun. Fékk mér reyndar hálfan bjór á föstudagskvöldinu og þá kom smá löngun, en ég reyndi bara að drepa hana jafn fljótt niður og hún kom upp.

Einmitt varðandi föstudagskvöldið þá fór ég út að borða og bíó með Ingunni. Fórum á Fridays að borða vissum að það myndi ekki klikka, alltaf gott að borða þar... NEMA  á föstudaginn.... Við fengum okkur báðar það sama. Völdum einhvern kjúkling með frönskum, soundaði geggjað vel á seðlinum, jæja svo fengum við réttinn, nokkrar frekar aumingjalegar franskar, og 5 stk af kjúkling sem leit út eins og djúpsteiktur fiskur. Ég var svo hissa þegar ég fékk þetta að ég sagði við Ingunni, ummm þetta lítur út eins og dish and fish.... hehehe.. en ætlaði að segja Fish and Chips... sem það gerði og þeta var alls ekki gott, ógeðslega feitt smjörbragð af þessu og ég lét fólkið alveg vita af því sem vinnur þarna að þetta er ekki eins og þau lýsa á matseðlinum.... Ég var mjög ósátt við þennan 1990 kr rétt.En við stöllur fórum svo á Yes Man og hlógum okkur máttlausar.. hehe.. Mjög gaman.

Eftir bíóið fékk ég svo símtal frá Aðalsteini. Þá var hann á Q bar með fullt af liði og þar á meðal Össa. Og spurði hvort mér langaði að koma og hitta hann.

Þið trúi því ekki hversu yndisleg tilfinning það var þegar ég labbaði inná Q bar að sjá þennan fallega, yndislega kraftaverkamann sitjandi þarna í stólnum, brosandi til mín með armana úti að bíða eftir faðmlagi frá mér. Augun hans ljómuðu sem sýndi mér að hann vissi alveg hver ég væri. Við knúsuðumst og kysstumst hæ. Það var varla að sjá að þessi lífsglaði drengur hafi næstum verið farin frá okkur fyrir 4 mánuðum síðan og sé búin að vera að berjast fyrir lífi sínu síðustu mánuði með tvöfalt höfuðkúpubrot.
Það var nú bara núna í byrjun jan sem hann fær að sofa heima hjá sér og er á Grensás alla daga í endurhæfingu, þannig framfarirnar hjá honum eru hreint og beint ótrúlegar á svona stuttum tíma.
Þegar hann fór svo að spjalla við mig á fullu þá áttaði ég mig á því að hann er nú ekki alveg búin að ná sér að fullu, enda kannski skiljanlegt. Tal og tjáning - skrif og skilningur er eitthvað sem þarf að þjálfa alveg uppá nýtt,en hann er farin að tjá sig meira og meira. það er ekki alltaf sem maður getur skilið hvað hann er að segja og gagnkvæmt fyrir hann en greinilega miklar framfarir samt búnar að eiga sér stað því hann gat alveg sagt sum orð í því sem hann var að tjá sig um. Æi þetta var bara yndislega tilfinning að geta hitt hann, faðmað hann og átt smá stund með honum og ég veit það alveg með góðri endurhæfingu og tal/tjáningarþjálfun þá muni hann vera sá sami innan tíðar, því það er eiginlega það eins sem hrjáir hann. Lífsglaði drengurinn Össi sem ég kynntist fyrir nokkrum árum síðan mun koma sterkur inn innan tíðar....


Skrifað 26.1.2009 kl. 14:09 af Berglind

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

20.1.2009

Dagur 9

Jæja þá er komnir 9 dagar síðan ég hætti að reykja og ætla ég halda áfram að telja á meðan ég er enn hætt.
Þetta gengur enn alveg gríðarlega vel, eiginlega betur en fyrsta vikan þannig ég hef alveg mikla trú á mér að þetta eigi alveg eftir að ganga upp. Ræktin er líka að hjálpa helling. Manni líður svo vel eftir að vera búin að púla í 2-3 tíma að manni langar eiginlega ekki að eyðileggja þetta litla þol sem maður hefur og er að byggja upp fyrir einn smók.
Einnig komst ég eiginlega að því að reykingarlykt er ógeðslega vond. Ég bara gerði mér ekki grein fyrir því að hún væri virkilega svona ógeðsleg. Fannst hún aldrei góð hehe ekki að segja það en fannst hún ekki svona hrikalega ógeðsleg. Kannski fann ég hana ekki eins mikið þegar ég reykti dags daglega, því þetta var bara lyktin af manni eins og ég geri núna þegar ég er einhversstaðar þar sem er reykt. Þá finn ég hana miklu miklu meira. Og mér finnst hún ógeð......

Fékk mér í glas um helgina þegar ég fór í 26 ára ljótufataafmæli til Ölmu Daggar. Og svona þegar líða fór á nóttina og áfengismagnið komið yfir öll velsemismörk þá fann ég fyrir þörfinni viðurkenni það alveg, enn stelpan stóðst þessa löngun og gekk í gegnum helgina alveg reyklaus.

En nóg um reykingarnar......

Svona voru við Sif flottar ....



Fór aðeins að spá í þessu bloggi mínu þegar ég fékk sendan póst frá 123.is um að 1 mars væri komið ár síðan ég fékk mér þetta blogg og komið að því að endurnýja þessa síðu. Og ég fór að velta því fyrir mér, er þörf á því að endurnýja hana. Facebook er gjörsamlega að tröllríða landanum núna, þekki ekki orðið manneskju sem ekki er með facebook. Eru bloggin ekki bara orðin úrhellt, er fólk eitthvað enn að lesa þetta hjá manni, þegar það getur séð nákvæmlega frá degi til dags hvað maður er að gera á Fésinu. Fór aðeins að pæla í þessu. Því ég sjálf er með facebook opið 8 tíma á dag á meðan ég er í vinnunni og svo kannski aðra 4-5 tíma á kvöldin þegar ég er heima, en les kannski blogg einu sinni í viku.  En áður fyrr las maður blogg á hverjum degi.

Þannig mér langar aðeins að taka smá test á þetta. Er bloggið enn að virka hjá manni. Ef það er já. Endilega skyldu eftir spor. Ef það er nei endilega skyldu samt eftir spor og segðu þína skoðun af hverju svarið er nei :) :)

Langar að sjá hvort ég eigi að halda áfram að blogga um gjörsamlega ekki neitt nema nákvæmlega það sem mig langar til að blogga um, eða hvort ég eigi bara að hætta og láta fésið nægja.

Skrifað 20.1.2009 kl. 12:26 af Berglind

Bein slóð á færslu

10 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

15.1.2009

Dagur 4....

Jæja þá er mín búin að vera hætt að reykja í 4 daga og þetta gengur alveg ágætlega. Þurfti reyndar á hjálp að halda á 3ja degi. Fór og fékk mér plástur sem kostar 4200 kr og eru með 20 stk í pakka. Finnst það dýrt en samt ódýrara en að reykja. Þannig þetta kemur nokkurn vegin út á það sama. Fannst erfiðast við þetta að hætta að reykja er þegar vinnufélagarnir eru að fara út þá kemur gríðarleg löngun hjá mér að fara með þeim, en eftir að ég fékk plásturinn þá hefur sú löngun farið. Þannig ég vona að þetta sé komið til að vera þó ég sé bara að taka einn dag í einu. Á alveg eftir að kjást við þetta þegar ég fæ mér í glas, en það verður bara að koma í ljós...

Er einnig búin að fá mér kort í World Class og búin að fara í einn tíma. Fór í hann í gær og mér fannst ógeðslega gaman. Var alveg í 2 tíma með Hildu sem var að kenna mér á þetta allt saman og var eiginlega eins og einkaþjálfarinn minn sem mér fannst æði.

Ég er eiginlega að vonast til þess að þetta sé ekki bara einhver góð byrjun og ég eigi eftir að hætta bara. Það er allavegana ekki markmiðið. Ég byrjaði alveg rosalega hægt í gær og leið frekar illa við hliðiná fólkinu sem var að hlaupa á fullu á brettinu á meðan stelpan bara rölti þetta rösklega yfir nágrönnum hehe..

Ég er allavegana stolt af mér fyrir að vera byrjuð og vera búin að vera reyklaus í 4 daga :)

Annað í fréttum er að Þorrablótið á Raufarhöfn er 7 feb og ég ætla sko að fara og er meira að segja búin að kaupa mér flug til Ak þessa helgi :)

Ætlar þú að fara ???? Mátt varla missa af þessu, mér finnst þetta með þeim skemmtilegustu hátíðum sem haldin eru heima.

Skrifað 15.1.2009 kl. 13:13 af Berglind

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

13.1.2009

Heilsuárið mikla...

Ég tók þá ákvörðun í des að árið 2009 yrði heilsuár hjá mér. Hvort ég muni standa við það mun koma bara í ljós. Ég er allavegana byrjuð og það fyrsta sem ég tók mér fyrir hendur á þessu mikla heilsuári mínu var matarræðið, ekkert nammi né gos nema um helgar og ekki borða á milli mála.Það er komin vika síðan ég byrjaði á því það næsta er að hætta að reykja.Og er þetta dagur nr 2 sem er reyklaus hjá mér og mun ég aðeins taka einn dag í einu. Gæti kannski reykt þennan daginn enn ekki hinn þó áætlun sé að reykja bara ekki neitt árið 2009. Það næsta sem ég mun taka upp á heilsuárinu miklu er að fara að æfa í Laugum, World Class. Hef nú reyndar aldrei farið þangað þannig ef einhverjum langar að koma með mér sem er að æfa þar bara svona taka mig með og sýna mér staðin og aðeins að leyfa mér að kynnast þessu þá yrði ég mjög þakklát með það :) Þetta er ekki áramót heit enda hef ég aldrei verið góð í því að standa við þau heit, þetta er bara ákvörðun sem ég tók í des og vonandi gengur þetta allt saman upp hjá mér...

Annars gerði ég þetta um helgina.....

Annars er bara fínt að frétta. Fór á píkuhitting síðasta föstudag og þá var tekin spáin fyrir árið 2009 og fékk ég ekki mína spá þar sem hún var bara ekki að geta spáð fyrir mér, sagði að það væri greinilega mikið að gerast í kollinum á mér ( sem var rétt ) að hún var engan vegin að geta lesið í þetta, sem er í fyrsta skipta því yfirleitt er nú frekar létt að spá fyrir mér og er ég eins og opin bók, en eitthvað var það sem hún var ekki að sjá. Spiluðum einnig nýja spilið Bíóbrot sem ég keypti af Sveppa í vinnunni um daginn, og þetta er alveg þrælskemmtilegt spil og ég get eiginlega ekki beðið eftir að spila það aftur. Þú þarft eiginlega að hafa gaman af bíómyndum til að vilja spila þetta spil, má eiginlega segja ef þér finnst bleiku reitirnir í trivial skemmtilegir þá finnst þér þetta vera skemmtilegt spil :) heheh.
Laugardagur: Hjápaði Þóru að pakka...
Laugardagskvöldið var Íris með 25 ára afmæli heima hjá sér og  fór ég svo í stelpusingstar partý hjá Þóru og skemmti mér ógeðslega vel. Kíkti í bæinn sem var allt í lagi...

Sunnudagu: Fór svo í brunch á sunnudeginum í smáralindinni með henni Brimrúnu. Brimrún gerði áramótaheit að eyða meiri tíma með mér og stelpan er sko aldeilis að standa við það eða allavegana byrjar vel og var þetta okkar fyrsti hittingur á nýju ári.

segi þetta gott í bili....

P.S TIL ÞEIRRA SEM VORU Á ÁRAMÓTABALLI Á RAUFARHÖFN.
TÝNDI EINHVER MYNDAVÉLAHULSTRI Á BALLINU UM ÁRAMÓTIN ??ENDILEGA SENDU MÉR LÍNU Á  berglind_mjoll@hotmail.com


Skrifað 13.1.2009 kl. 11:55 af Berglind

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

7.1.2009

Líst ágætlega á þetta

Ég held að árið 2009 eigi eftir að vera alveg hið ágætasta ár. Hef mikla trú á því. Ætla allavegana að vera jákvæð og ekki leyfa þessari kreppu að telja mér trú um neitt annað.
Ég er strax farin að plana og skipuleggja mig og er eiginlega janúar orðin fullbókaður, svona um helgar allavegana..
Enda svona skipulagsfrík eins og ég er nú þá verður maður að byrja strax annars gæti allt farið í vitleysu. En það sem framundan er, Píkuhittingur á föstudagskvöldið. Afmæli hjá Írisi Ósk. Stelpupartý hjá Þóru.Afmæli hjá Ölmu Dögg. Afmæli hjá Karlottu. Afmæli hjá Elvu. Endalaust af afmælum í jan, sem er bara skemmtilegt :) svo er ég aðeins farin að skipuleggja lengra í tíman, en ætla ekkert að uppljóstra því að svo stöddu. En ég held að ég muni hafa alveg nóg að gera árið 2009 og mér leiðist það nú ekki.

Annars er ég búin að henda inn myndum frá aðfangadag og jóladag. Þetta eru frekar mikið af myndum þannig ég set annan í jólum og áramót seinna inn..



Skrifað 7.1.2009 kl. 22:18 af Berglind

Bein slóð á færslu

10 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

5.1.2009

Árið 2009 gengið í garð..

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 4834
Gestir í dag: 19
Flettingar í gær: 12999
Gestir í gær: 47
Samtals flettingar: 571403
Samtals gestir: 27078
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 13:06:05

Vafraðu um

Celine Dion í Köben

atburður liðinn í

1 ár

9 mánuði

16 daga

Þjóðhátíð í Eyjum

atburður liðinn í

1 ár

7 mánuði

21 daga

Stelpan sjálf..

Nafn:

Berglind Mjöll

Farsími:

im not gonna tell

MSN netfang:

spurðu bara.....

Afmælisdagur:

27 júní

Heimilisfang:

Hraunberg 11

Staðsetning:

Reykjavík

Heimasími:

..........................

Móðir:

Guðný Baldursdóttir

Önnur vefsíða:

www.facebook.com/

MySpace vefsíða:

www.myspace.com/bellamjolla

Um:

Betra er autt rúm en illa skipað

Uppáhalds bíómynd(ir):

10 things i hate about you og How to Lose a Guy in 10 Days-Love it ...Og flest allar spennumyndir

Uppáhalds tónlist:

Alæta á tónlist...

Uppáhalds manneskjur:

Bylgja systir,mamma mín Guðný og Olga :)

Uppáhalds matur:

Rjúpur,humar og pasta

Eftirminnilegast:

Wipeoutferðin !!

Tenglar