Allt sem þú lest er lygi

Betra er autt rúm en illa skipað

Blogg

"Betra er autt rúm, en illa skipað"

25.2.2009

Fjólublátt var það ....

Helgin var alveg hin fjólubláasta...

Hélt fjólublátt þema partý fyrir Ríbenstelpurnar á laugardaginn, og var gleðin ríkjandi þetta kvöld ásamt kannski of miklu áfengismagni. Leyfi bara myndunum að tala sínu máli held ég :)

Annars er djammið búið að vera frekar mikið hjá mér í febrúar og hef ég tekið þá ákvörðun að minnka það aðeins, fara bara út ef það er alveg bráðnauðsynlegt, sem það er nú oft á tíðum :)  hehe....
Hef alls ekki viljað missa af þessum djömmum sem ég hef farið á uppá síðkastið en það er samt komin tími á smá pásu :)

Er samt að fara á árshátið næstu helgi hjá Mbl. Mun svona fá mér aðeins, en ekkert fillerý :) (þessi ákvörðun er tekin núna 25.02.09 þar sem ég er allsgáð en gæti breyst 28.02.09 þegar ég er undir áhrifum áfengis. hehehe... Fer eftir stemmaranum :)
Svo er ég bara að bíða spennt eftir helginni 20-22 mars því þá er bústaðarferð með eitthvað af píkustelpunum  :) Aðeins að komast úr bænum og eyða helginni í kósý heit og spilakvöld :)

Annars er bara allt gott að frétta, er enn hætt að reykja, komnir 45 dagar og ég er alveg hrikalega stolt af mér að ná þessu, þetta verður auðveldara og auðveldara því lengra sem líður :)
Ræktin er líka alltaf á sínum stað, reyni að mæta alveg 3-4 sinnum í viku, gengur samt svona misvel, virðist alltaf vera eitthvað voða mikið að gera hjá manni. Annað hvort að vinna 13 tíma á dag eða rækta vinina með að hittast á kaffihúsi og eða í bíói sem er líka æðislegt og mjög mikilvægt að mínu mati.

Læt þetta gott heita og hendi inn nokkrum myndum frá laugardagskvöldinu.. Annars eru fleiri í myndaalbúminu...

Later...


Við frænkur ..



Það var sko horft á öll smáatriði.. Neglurnar urðu að vera fjólubláar líka..



Elva og Eva Dögg voru fjólubláar og hressar...



Að sjálfsögðu voru allir fjólubláir...

Flíkinn hennar Ölmu var á gólfinu...


Skrifað 25.2.2009 kl. 14:43 af Berglind

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

17.2.2009

Mitt ár....

Ég held að árið 2009 sé og verði mitt ár. Miklar breytingar hafa átt sér stað með mig og fleiri munu sjálfsagt koma í ljós þegar líða fer á árið :)

Það er nú ekki mikið búið af því en ég hef grun um að þetta eigi algjörlega eftir að vera ár Berglindar. Þrátt fyrir kreppuvesen, atvinnuleysi og önnur leiðindarmál í þjóðfélaginu þá horfi ég bara jákvæðum augum á þetta ár.

Það eru komnir 37 dagar síðan ég hætti að reykja, og verður þetta alltaf auðveldara og auðveldara að mér finnst. Það var fyrsta skiptið núna um helgina sem ég fékk enga löngun til að reykja þegar ég fékk mér í glas og finnst mér það geggjað. Því fram að þessari helgi þá hafa þær verið að reynast mér erfiðastar þegar ég hef fengið mér í glas, en þá hef ég bara gripið til tyggjósins, því ég ætla ekki að vera þessi sem mun reykja þegar ég fæ mér í glas því það myndi bara leiða eitt að öðru og ég myndi byrja að reykja aftur.

Er komin alveg á fullt í ræktinni. Ekki lengur bara fast 2 sinnum í viku, heldur alltaf þegar ég kemst. Sem er yfirleitt svona 4 sinnum í viku.Og er ég alveg búin að finna minn tíma, þar sem ég er að brenna eins og kjáni og fæ alveg þvílika útrás og það er Kickbox. Það er ekkert smá gaman. Er reyndar bara búin að fara í einn tíma en fer í tíma 2 í dag. Fór samt á laugardaginn í body combat og það er svipað, sparka, kýla og hoppa... Geðveikir tímar...  Ætla sko að vera ógeðslega flott og fitt áður en árið 2010 rennur í garð :)

Svo er ég nátturulega búin að klippa AF mér hárið. Nánast orðin stutthærð :)
Er einnig orðin miklu ferskari eitthvað en ég var, ekki eins þreytt alltaf og þung eins og mér fannst ég vera, heldur bara ógeðslega hress og kát og alltaf til í að gera allt, en ekki bara fara beint heim að sofa eftir vinnu :)

Þannig með þessu áframhaldi þá held ég að árið 2009 verði klárlega mitt ár :)

Skrifað 17.2.2009 kl. 9:29 af Berglind

Bein slóð á færslu

8 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

9.2.2009

Þorrablót og fleira....

Þá er maður komin heim frá alveg snilldar helgi heima á Raufarhöfn.
Það var lagt af stað í Road Trip á föstudeginum kl 15:15. Þá flugum við norður ég, Gyða og Lovísa. Lentum svo stundvíslega kl 16:15 á Ak. Þar beið okkar eðal drossía sem við vorum að fara að ferðast með til Raufarhafnar. Ekkert útvarp var í bílnum, bakið á sætinu var fast og lá maður eiginlega aftur í og miðstöðin var biluð, annað hvort var ískalt eða funheitt. Sem sagt eðal kaggi :) En þrátt fyrir smávægileg óþægindi þá er ég bara þakklát afa hennar Gyðu fyrir lánið á bílnum því hann kom okkur á milli staða.

Þorrablótið var hreint út sagt alveg hrikalega skemmtilegt og skemmti ég mér alveg hrikalega vel. Skemmtiatriðin voru alveg geggjuð og vildi ég bara meira þegar þeim var að ljúka þau voru svo góð.
Tók myndband af einu skemmtiatriðinu og er búin að setja það hérna inn á bloggið mitt undir linknum myndbönd og er lykilorðið það sama og er á myndunum. Tekur sirka 3 mín að hlaðast inn. Þetta er alveg snilldaratriði með þeim Þór Fía, Tomma og Friðgeir Gunnars að taka smá Tinu Turner show. Er einnig búin að henda inn alveg helling af myndum frá blótinu og helginni allri :)

Ég hugsa að ég verði alveg í heila viku að jafna mig eftir þessa helgi jafnvel lengur. Það var alveg illa tekið á því á þessu blóti og er minnið og heilsan samkvæmt því. Leyfi bara myndunum að tala um ástand ljósmyndarans hehehe :)


Skrifað 9.2.2009 kl. 11:39 af Berglind

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

2.2.2009

Myndir og fleira....


Ég er enn hætt að reykja, Komin dagur 22. :) :) :) :)
Síðasta vika var nú ekkert sérstaklega fjörug hjá mér. Fór í mat til Sif og Sigga síðasta mánudagskvöld. Hjónakornin buðu mér uppá slátur sem er nú með uppáhaldsmatnum mínum. Þegar ég var svo búin að borða yfir mig þá fór mér nú eitthvað að kólna og líða eiginlega bara hálf illa.Þegar ég kom heim þá bara ætlaði mér ekki að hitna og ég fór í brennandi heita sturtu og alltaf varð ég verri og verri og svo bara fór kella að æla á fullu. Eftir klukkutímabaráttu við kuldan þá gat ég eiginlega ekki annað en tekið því að ég var orðin fárveik. Fékk góða aðhlynningu hjá Írisi sambó sem betur fer því ég gat varla hreyft mig því ég hélt að beininn myndum brotna af kulda. Ég bara man ekki eftir því að hafa verið svona veik áður og ekki fengið svona ælupest síðan ég var bara krakki. Díses þetta var ógeðslegt. Þannig ég lá gjörsamlega fárveik frá mánudagskvöldi til fimmtudags. Fór ekki í vinnu á föstudeginum því maginn var enn að stríða mér og ég vildi helst ekki þurfa að díla við hann í vinnunni þar sem ég get ekki staðið upp akkurat þegar ég þyrfti.

Á laugardaginn fór ég svo í klippingu til Karlottu og það má eiginlega segja að allt hárið á mér fékk að fjúka. hehe.. ég er eiginlega orðin stutthærð að mínu mati, man eiginlega ekki eftir því að hafa verið með svona stutt hár áður. Hef séð myndir af mér sem krakka með MJÖG stutt hár, en eftir að ég fékk að safna hári þá hef ég ALDREI verið með það svona stutt. En þar sem hárið á mér er svo fljótt að síkka þá var ég bara í sjokki í svona 5 mín. hehe...


Svona lít ég út í dag :)




Get líka haft topp :)







Strax eftir klippinguna lá leið mín út á flugvöll þar sem leið mín lá á þorrablót á Egilsstöðum :) Mamma hafði boðið mér að koma austur og keypti handa mér flug með því skilyrði að engin mátti vita af komu minni. Ég var svo lent korter í 6 á laugardeginum og kom algjörlega surprise í hús þar sem Guðný, Nonni, Brynjar, Linda, Bjössi, Þóra, Olga og Raggi sátu og það má sko segja að þau voru frekar hissa :) Svo fór maður eiginlega bara beint á þorrablót í Fellabænum sem var alveg hrikalega gaman, skemmti mér ekkert smá vel með ættingjunum sem áttu eiginlega þorrablótið hehe..

 Búin að henda inn fullt af myndum..  :)
Eitthvað um 200 stk :)

Svo er það bara þorrablótið á Raufarhöfn næstu helgi :)







Skrifað 2.2.2009 kl. 20:23 af Berglind

Bein slóð á færslu

7 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 48
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 156
Gestir í gær: 10
Samtals flettingar: 553618
Samtals gestir: 27018
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 14:03:52

Vafraðu um

Celine Dion í Köben

atburður liðinn í

1 ár

9 mánuði

15 daga

Þjóðhátíð í Eyjum

atburður liðinn í

1 ár

7 mánuði

20 daga

Stelpan sjálf..

Nafn:

Berglind Mjöll

Farsími:

im not gonna tell

MSN netfang:

spurðu bara.....

Afmælisdagur:

27 júní

Heimilisfang:

Hraunberg 11

Staðsetning:

Reykjavík

Heimasími:

..........................

Móðir:

Guðný Baldursdóttir

Önnur vefsíða:

www.facebook.com/

MySpace vefsíða:

www.myspace.com/bellamjolla

Um:

Betra er autt rúm en illa skipað

Uppáhalds bíómynd(ir):

10 things i hate about you og How to Lose a Guy in 10 Days-Love it ...Og flest allar spennumyndir

Uppáhalds tónlist:

Alæta á tónlist...

Uppáhalds manneskjur:

Bylgja systir,mamma mín Guðný og Olga :)

Uppáhalds matur:

Rjúpur,humar og pasta

Eftirminnilegast:

Wipeoutferðin !!

Tenglar