Allt sem þú lest er lygi

Betra er autt rúm en illa skipað

Blogg

"Betra er autt rúm, en illa skipað"

17.4.2009

Páskarnir....

Páskarnir voru æði út í eitt...
Ákvað að prufa að vera á Egilsstöðum þessa páskana og ég var sko alls ekki fyrir vonbrigðum, enda er ég það nú mjög sjaldan þegar ég fer austur.... Ég tók mér vikufrí sem var eins og 1 dagur að líða. Ótrúlegt hvað fríin manns eru fljót að líða en vinnuvikan lengi... En ég eiginlega nenni ekki að blogga þannig ég leyfi myndunum að tala... og by the way, þá er ég búin að henda inn alveg fullt af myndum....

Ég fór alveg 3 sinnum á snjósleða, komumst ekki oftar vegna veðurs :(

Ég komin með hjálminn, maður verður að vera með öryggið á oddinum, þó hjálmurinn heiti Pornstar...


 Stelpan komin á fjölskyldusleðan......



Komin á Smokey sem Bylgja og Bryngeir eiga...



Svo þurfti maður líka að fara á svona sleða, og láta þennan stóra draga sig....



Og maður endaði þetta á því að renna sér niður Fjarðarheiðina, datt alveg í barndóm ( veit ekki hvort þetta er rétt skrifað, vill ekki spyrja Hauk, ritstjóran minn, þar sem við tölumst ekki við þegar þetta blogg er skrifað... )


Erum hérna lengst uppá á heiði....                      Þurftum að henda okkur af til að stoppa okkur..



Það var tekið eitt spilakvöld. Spiluðum Kreppuspilið, Actionary og Pictonary...





Fór svo á ball á laugardagskvöldinu með Á móti sól.Héldum smá fyrirpartý heima í Dalbrúnninni. Óskar og Maggi komu keyrandi frá Höfn og skemmtu sér með okkur.






Fór nokkrum sinnum í pottinn....



Fékk Páskaegg NR 9 ... Þurfti að leita að því það og fékk góða hjálp hjá Unnar bæði með að finna það og borða það :)






Ég átti alveg yndislega gott páskafrí í faðmi fjölskyldunnar. Ég og mágur minn vorum alveg til friðs þessa páskana, vorum svo sæt og góð :)



Kom alveg endurnærð og úthvíld í borg óttans, eftir vikufrí, en með mikin söknuð í hjartanu.........

Skrifað 17.4.2009 kl. 13:48 af Berglind

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

3.4.2009

Im só sorrý.......

Sorrý Eva mín, já ég á það til að gleyma þessu blessaða bloggi, facebook tekur einhverja hluta vegna alltaf allan tíman. En ég skal reyna að bæta þetta :)
Það er nú svo sum ekkert merkilegt að frétta af manni þannig... Ég er enn hætt að reykja og er komin dagur 82 :) Vei, vei... Var farin að slappast í ræktinni, en reif mig á fætur og er farin að stunda ræktina á fullum krafti, fór t.d alla þessa viku alltaf kl 7 á morgnana, mjög gott að byrja daginn á því að hlaupa aðeins og svona :) Matarræðið er einnig komið í forgang hjá mér, ekkert ógeð í minn maga nema um helgar. Þannig ég vona svoooo innilega að á næstu vikum fara kg að hendast af mér og vöðvarnir fari að brjótast í gegn :) Eina sem hefur ekki verið tekið í gegn er áfengisneysla og djamm, en það mun breytast eftir páska :) Ætla að ganga inn í sumarið alveg stórglæsileg. hehe..

Annars var síðasta helgi alveg geggjuð. Á föstudaginn síðasta var hittingur á players hjá þeim sem voru á Laugum. Þetta heppnaðist ekkert smá vel og var mjög vel mætt, og vonandi mun þetta bara vera árlegt og vonandi ennþá fleiri láti sjá sig. Berglind nafna mín hafði samband við mig í byrjun mars og spurði hvort ég vildi taka þátt í því með henni að halda svona hitting og að sjálfsögðu sagði ég já, og á 3 klt var þetta klappað og klárt og bara beðið eftir deginum til að sjá hversu margir myndu láta sjá sig. Þannig það er ekkert erfitt að halda svona dæmi :)
Set nokkrar myndir í bloggið og restina set ég í albúm eftir helgi :) Á laugardagskvöldinu fór ég svo í mat til Sifjar svo í afmæli til Gæa og það var algjör snilld, enda saman komnir Gæi, Óskar og Gummi og var mikið sungið og spilað á gítar. Eftir afmæli var svo kíkt á skímó ball.
Þannig síðasta helgi var alveg rosaleg djamm helgi og kannski ágætt þar sem maður er nú að fara aðeins að hægja á sér :)

Páskarnir eru svo framundan og fer ég í frí og austur á Egilsstaði þriðjudaginn 7 apríl. Get ekki beðið :)
Eva mín, vona að þetta sé nóg í bili elskan og ég biðst innilegar afsökunar á þessu hjá mér :) :) :)



Berglind og Berglind. Laugahittingshaldarar           2009-Moi og Nanna María



Hjónin Gunni og Berglind                               Lára, Berglind, Tanía og Magga



Gummi og Frú                                                Þorvaldur og Gummi Úlfur


Óskar og Steini                                                       Nanna,Moi og Karen



Héðinn, Gunni, Frosti,Berglind og Tanía                   Moi og Ásta María



Moi að syngja með Ingó og Veðurguðunum... Alltaf gaman að syngja, I will survive hehe..


                         Hressar gellur....                                      Moi og Kolla



                         Vann Poolið...                                      Og fékk Tequila í vinning..



Skrifað 3.4.2009 kl. 11:51 af Berglind

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 1723
Gestir í dag: 10
Flettingar í gær: 12999
Gestir í gær: 47
Samtals flettingar: 568292
Samtals gestir: 27069
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 06:32:11

Vafraðu um

Celine Dion í Köben

atburður liðinn í

1 ár

9 mánuði

16 daga

Þjóðhátíð í Eyjum

atburður liðinn í

1 ár

7 mánuði

21 daga

Stelpan sjálf..

Nafn:

Berglind Mjöll

Farsími:

im not gonna tell

MSN netfang:

spurðu bara.....

Afmælisdagur:

27 júní

Heimilisfang:

Hraunberg 11

Staðsetning:

Reykjavík

Heimasími:

..........................

Móðir:

Guðný Baldursdóttir

Önnur vefsíða:

www.facebook.com/

MySpace vefsíða:

www.myspace.com/bellamjolla

Um:

Betra er autt rúm en illa skipað

Uppáhalds bíómynd(ir):

10 things i hate about you og How to Lose a Guy in 10 Days-Love it ...Og flest allar spennumyndir

Uppáhalds tónlist:

Alæta á tónlist...

Uppáhalds manneskjur:

Bylgja systir,mamma mín Guðný og Olga :)

Uppáhalds matur:

Rjúpur,humar og pasta

Eftirminnilegast:

Wipeoutferðin !!

Tenglar