|
Allt sem þú lest er lygi Betra er autt rúm en illa skipað |
|
Blogg"Betra er autt rúm, en illa skipað" 28.5.2009Er sko alveg að standa migÞá er best að blogga, var búin að lofa að blogga alltaf einu sinni í viku. Þetta er helst í fréttum...... Helgina 16 maí var eurovision eins og örugglega allir vissu og Noregur vann með Farytale sem ég elska og Ísland lenti í 2 sæti. Kom mér virkilega á óvart með ísland, skal alveg viðurkenna það að ég hafði ekki mikla trú á okkur.En þetta gat stelpan og tek ég bara að ofan fyrir henni og ég var alveg mjög glöð fyrir íslands hönd þetta kvöld. Ég fór í afmælis/þema/celeb/europartý hjá Ingunni og Gunna Palla og það var mikið húllum hæ. Það áttu allir svo að draga sér land þegar stigakeppnin hófst og drekka þegar þeirra land fékk stig.Ég dróg Króatíu og var ég orðin ansi þurr í hálsinum því þeir voru bara ekki að fá stig. En ég tók ákvörðun mjög snemma um kvöldið að ég ætlaði að drekka fyrir Noreg því ég bara elska þetta lag. Svo bauð nú gestgjafinn mér að draga aftur, því ég var eiginlega ekkert með í leiknum, var eiginlega bara að svindla með að drekka alltaf fyrir Noreg, haldi þið að stelpan hafi þá ekki bara dregið Noreg, búin að vera lögleg allan tíman. Þannig ég fór með 2 hvítvín á no time því maður drakk líka fyrir Ísland og eins og þið vitið var slegið stigamet hehe.. Þannig stelpan var orðin bísna hress... hehe... Set inn myndir frá kvöldinu við tækifæri.Leyfi 3 myndum að fylgja svona til að sýna ykkur stemmarann þetta kvöld. Ég var að sjálfsögðu Madonna... Kom ekkert annað til greina.... ![]() Hópurinn.... ![]() ![]() Annað í fréttum...... Fjölskyldan í Dalbrún 6 kom í borg óttans síðustu helgi bæði til að kveðja og samfagna. En hún Allý var kvödd síðasta föstudag við rosalega fallega athöfn og votta ég Halla,Bjarna,Jóni,Rakel og fjölskyldum þeirra mína dýpstu samúð. Gunni Palli útskrifaðist sem farmaður einnig síðustu helgi og var þvílikt húllum hæ með hljómsveit og öllu til að fagna þeim áfanga. Takk fyrir mig Gunni. Mjög flott veisla. Einkaþjálfuninn gengur eins og í sögu, finnst þetta ógeðslega gaman og er eiginlega alveg hundfúl að þetta sé að verða búið. Mun algjörlega kaupa mér annan mánuð hjá honum. Hann er öfga kennari og það er nákvæmlega það sem ég fýla. Skal koma með dæmi hvernig hann er að æfa mig. Þetta var t.d æfingin í gær. 150 hnébeygjur ( án lóða) 150 framstig ( 75 á hvorn fót) 150 uppstig ( 75 á hvorn fót, annar fótur uppi á palli og stigið upp) 100 axlapressur ( 4 kg með báðum höndum, standandi, rétta úr höndum og láta síga niður aftur að öxlum og lyfta aftur upp) 100 armbeygjur ( eins margar á tánum og hægt er, rest á hnánum) 4x 400 m sprettir ( ekki hægar en 10 kmh/ Eins og þið sjáið þá er þetta ekkert lítið sem maður er að gera :) Enda er ég komin með vöðva á staði sem ég bara vissi ekki að maður ætti að hafa vöðva yfir höfuð. hehe.. En í dag er loka mæling,vigtun og fitu % mæling. En við eigum samt 2 tíma eftir hjá honum sem við ætlum að reyna að fá að nota í þarnæstu viku þar sem ég er að fara norður í kvöld í vikusumarfrí. Ég skal láta vita í næsta bloggi hvernig ég var í upphafi þjálfuninnar og hvernig ég er í lokin. Lofa að segja 100% satt frá hehehe.... Annars góð helgi, er farin norður til að sjá og fagna fermingardeginum hjá henni Nönnu "litlu" minni sem er að fara í fullorðinsmannatölu.. jíses im getting old :) 21.5.2009Meira blogg...Fleiri fréttir.... Fimmtudaginn 14 maí ákvað stelpan að taka þátt í einhverju sem heitir ertu kepnnis. Og þar sem ég er keppnis þá lét ég yfirmenn mína plata mig í þetta. Þessi keppni fór fram í Nauthólsvíkinni í ágætisveðri en hífandi roki.Keppnin var sem sagt þannig að við vorum 9 manns sem tóku þátt allir starfsmenn 365 miðla. Vorum aðeins 2 stelpur sem þorðu að fara og ég var önnur þeirra og svo önnur sem ég er að vinna með mér í minni deild.Það var semsagt farið í þrautir í sandinum, skríða undir net, moka sand í 6 (við stelpurnar fengum að setja í 4 ) fötur og hella þeim í hjólbörur, fara með hjólbörurnar að keila og hvolfa úr þeim, draga dekk og smarka kaðli í mark. Leyfi myndum að fylgja sem útskýra þetta betur..... Svo var farið í kajak í sjónum og gekk mér ógeðslega vel, var alveg önnur af 9 þegar eitthvað klikkaði og ég valt bátnum og fór svo gjörsamlega á bólakaf í ískaldan sjóinn, þvílikt sjokk sem ég fékk og var ég mjög lengi að jafna mig, en þar sem ég er keppnis þá hætti ég ekkert, heldur dróg kajakinn í land og byrjaði aftur og var samt ekki síðust :) hehe.. Svo þegar ég kom í land þá var strax farið í næstu þraut og það var að hlaupa út í sjó og sækja hring í fötu. Það var mjög erfitt þar sem ég var varla búin að ná andanum frá því að róa kajak í mótvindi og brjáluðum öldugang. En þetta var allt ógeðslega gaman. En maður lenti í 2 sæti og af 2 stelpum hehe.. Fékk þáttökurétt í einhverjar svaka keppnis keppni í haust á Laugarvatni sem ég efast um að ég ætli að taka þátt í. Og svo fengum við Aldís verðlaun fyrir bestu búningana. hehe.. En þetta var allt ógeðslega gaman en virkilega erfitt. Á því miður ekki myndir frá kajakferðinni, þar sem ég gleymdi að biðja einhvern að taka myndir fyrir mig og ég get ekki stolið myndunum sem eru inná heimasíðu starfsmanna 365 Ég og Aldís.... Við erum keppnis.... ![]() Allir keppendurnir ![]() Þrautirnar... ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() 15.5.2009Sko mína......Maður er aldeilis búin að vera duglegur í þessari viku og ætla ég að ljúka henni með dugnaði og blogga eins og eitt lítið blogg... -Það sem er svona helst í fréttum er að síðustu helgi fór ég edrú á djammið á föstudagskvöldinu, fór fyrst í typpapartý hjá Hauk. Húsið var stútfullt af strákum að spila Fifa í playstation. Gríðarlegt fjör. Fór svo með Þóru og Hauk á Jackobsen að hlusta á dj/sönkonuna Robyn. Stoppaði nú ekki lengi þar sem ég var ekki alvega að fýla mig né fólkið í kringum mig svona edrú.. Á laugardeginum fór ég svo í ræktina og beint til Njarðvíkur í heimsókn til Ástu Maríu, þar lenti ég bara í geggjað flottu matar/grillboði og endaði kvöldið á kana spilum við frúnna, Magga og Leifa langt fram á nótt. Fannst það æði og væri til í svona kvöld um hverja helgi, ég elska að spila :) Þannig þarna var no alkahól helgi að baki. -Einkaþjálfunin gengur mjög vel, er alltaf að koma mér meira og meira á óvart hversu mikið úthald ég virkilega hef, það greinilega hefur borgað sig að hafa verið í íþróttum síðan maður var 5 ára gamall. Fór samt í vigtun síðasta miðvikudag og ég var nú ekki paránægð með niðurstöðurnar. En ég hafði þyngst um 1 gramm frá vikunni áður :( Hann tók okkur í vigtun,fitumælingu og ummálsmælingar 5 maí og það verður ekki aftur svoleiðis mælingar fyrr en í lok þjálfuninnar en það verður alltaf vigtun 1 sinnu í viku. Eins og ég sagði áður þá var ég ekki mjög ánægð með þetta 1 gramm sem mættist á mig, þar sem ég var alveg í heila viku nammilaus,vínlaus,goslaus og sukkmatarlaus borðaði alveg eftir bókinni og ekkert eftir kl 20:00 þannig þið getið rétt ímyndað ykkur hversu sár ég var, þó þetta sé bara 1 gramm. En ég hef skrifað matardagbók og lét ég þjálfarann hafa hana í gær og fæ að vita í dag hvað ég er að gera rangt.... -Golfnámskeiðið gengur hrikalega vel, kennarinn er svaka ánægð með mig og þarf lítið að setja út á hjá mér og ég er bara montin með það :) Hlakka til að golfast í sumar með Sif babe :) -Ísland komst áfram í eurovison og verður gaman að sjá á laugardagskvöldinu hvernig okkur mun ganga, en ég er að fara eurovison/afmælis/celebþemapartý hjá Ingunni og Gunna Palla og er áætlunin að taka aðra áfengislausa helgi, sjáum til hvernig það mun ganga. Mun reyna mitt besta :) hehe.. Annars áfram Yoanna á Laugardaginn :) Hvernig haldi þið að henni muni ganga ????????????? Allir að koma með e-h hugmyndir ? Og hverjum spái þið í topp 5 sætunum ?? ![]() Er með fleiri fréttir... Geymi þær þangað til eftir helgi... Berglind segir góða eurovison helgi og gangið ekki hægt um gleðinnar dyr bara varlega :) 7.5.2009Betra seint en aldreiJæja hvað ég er búin að vera ógeðslega léleg að blogga, þetta er ekki hægt. Svo afsaka ég mig í hvert skipti sem ég blogga að ég ætli að bæta mig og ekkert gerist... Það er greinilegt að statusinn minn er svo sannur. Að allt sem þú lest er lygi :) En jæja, frá síðasta bloggi er það þetta helst sem staðið hefur uppúr.... *Árshátíð 365 var haldin hátíðleg 18 apríl í listasafni Reykjavíkur. Leyfi nokkrum myndum að fylgja með neðst í færslunni hef einnig sett inn fullt af myndum inná myndir og fleiri koma inn á næstu dögum. *Svo datt ég í flensu, fékk barkabólgu og lá í næstum því í viku og fékk svo sýklalyf og var mjög slöpp alveg í viku í viðbót. Það var ömurlegt... *Olga og Nanna komu til Rvk og voru hjá mér. Voru i fermingarleiðangri sem gekk bara mjög vel. *Bylgja og Bryngeir komu einnig til Rvk og fór ég með þeim hjónum ásamt 2 vinum hans Bryngeirs út að borða á Ítalíu. *Hélt Raufarhafnarpartý. Átti nú bara að vera smá hittingur heima hjá mér áður en við færum á ball með skímó á Players.Ég, Alma Ýr,Elva Björk, Ingunn og Árdís en þetta breyttist í gítarpartý ala Óskars, Maggi,Steini,Gæi,Jónsi og Einar Sigmundur mættu með og 3 sandgerðingar létu einnig sjá sig.Þetta var svaka stuð. Við komumst ekkert í bæinn og fór stelpan bara að sofa þegar liðið fór um 3 leytið.. Gerist ekki betra en gott gítarpartý :) *Svo er ég byrjuð hjá einkaþjálfara. Ákvað að gefa mér 1 stk svoleiðis í gjöf fyrir dugnað á sjálfri mér fyrir að vera hætt að reykja. By the way þá er ég búin að vera hætt að reykja 12 maí í 4 mánuði.Ógeðslega ánægð með mig :) :) :) :) Ég byrjaði 4 maí hjá honum, maður var bara strax sendur í fitnesspróf og ég kom bara býsna vel út úr því svona miða við að ég hef ekki hreyft mig í næstum 3 ár og ný hætt að reykja. Er bara í ágætisformi samkvæmt prófinu, en maður má alltaf vera í betra og ætla ég klárlega að vera það þegar þjálfuninni líkur. Fór líka í fitumælingu og kom betur út úr henni en ég hélt og þar má ég klárlega bæta mig miklu, miklu meira og er það í áætlunni. Ætla sko að vera orðin mega flott fyrir sjómannahelgina :) *Svo er ég komin í nammi,gos og sukkmatarpásu fram að sjó sjó. Er í veðmálið við Bylgju systur hún er líka komin í nammi, gos og sukkmatarpásu hehe.. Erum komnar með smá óraunhæft markmið í kollinn á okkur og það er bara að sjá og vona að þetta muni allt saman standast og þetta hafi nú ekki verið svo óraunhæft. *Er einnig búin að skrá mig í golfklúbb í vinnunni og núna í maí er boðið uppá golfnámskeið og er ég í golfnámskeiði 1 sinni í viku. Fyrsti tíminn var 5 maí. Finnst þetta geggjað gaman. Það verður klárlega golfast mikið með Sif minni í sumar, hún einmitt var svo elskuleg að lána mér bleika flotta settið sitt á meðan ég er á námskeiðinu. Svo stefni ég klárlega á að kaupa mér mitt eigið :) Þannig það er alveg hellingur sem er búið að ské og er að frétta og ég skal LOFA Eva mín að blogga einu sinni í viku... LOFA :) Hérna er stelpan reddý,steddý to go to the Árshátíð.. ![]() Með Heiðari Austman og Með Svövu minni ![]() Ég og Siggi Stormur og ég Þóra mín ![]() Moi og Kúddi elskan og Kúddi ég og Sigrún konan hans Kúdda ![]() Moi og Rúnar Róberst og Frúin hans Pálma,Pálmi,Logi og Kristín. ![]() Læt þetta duga í bili.. Endilega kvittið þið sem eigið leið hérna hjá ef það eru einhverjir ennþá :S Kannski ég bloggi þá oftar ;-) ![]() Flettingar í dag: 9801 Gestir í dag: 40 Flettingar í gær: 156 Gestir í gær: 10 Samtals flettingar: 563371 Samtals gestir: 27052 Tölur uppfærðar: 20.3.2010 20:50:38 |
Vafraðu um![]() Celine Dion í Köben atburður liðinn í 1 ár 9 mánuði 15 daga Eldra efni Stelpan sjálf.. Nafn: Berglind MjöllFarsími: im not gonna tellTölvupóstfang: berglind_mjoll@hotmail.comMSN netfang: spurðu bara.....Afmælisdagur: 27 júníHeimilisfang: Hraunberg 11Staðsetning: ReykjavíkHeimasími: ..........................Móðir: Guðný BaldursdóttirÖnnur vefsíða: www.facebook.com/MySpace vefsíða: www.myspace.com/bellamjollaUm: Betra er autt rúm en illa skipaðUppáhalds bíómynd(ir): 10 things i hate about you og How to Lose a Guy in 10 Days-Love it ...Og flest allar spennumyndirUppáhalds tónlist: Alæta á tónlist...Uppáhalds manneskjur: Bylgja systir,mamma mín Guðný og Olga :)Uppáhalds matur: Rjúpur,humar og pastaEftirminnilegast: Wipeoutferðin !!Tenglar
|