Allt sem þú lest er lygi

Betra er autt rúm en illa skipað

Blogg

"Betra er autt rúm, en illa skipað"

24.6.2009

Svo sátt!

Bloggerí blogg skal það vera..
Það sem helst er í fréttum er..

Að ég er búin að missa 4 kg síðan ég byrjaði í átakinu sem var 4 maí. Er bara nokkuð sátt sko og er alls ekki hætt. Alveg 5-6 kg eftir og munu þau fara hægt og rólega. Markmiðið er allavegana að þau verði farin fyrir jólin. Ætla sko klárlega að komast í kjólinn fyrir jólin :)
Einkaþjálfunin er búin því miður og er maður bara farin að taka á stóra sínum ein. Finnst það pínu erfitt, því ég er ekki svo klár í þessum æfingum en við Hilda sem æfði með mér reynum að hittast reglulega og æfa saman, finnst það æði. Annars ætlum við að panta hann Hilmar "okkar" aftur í haust, ekki spurning
emoticon

Fór svo í esjugöngu með Ástu Maríu síðasta laugardag, reif mig upp um hádegi skel þunn alveg og fór í göngu upp esjuna og sund í mosó.Besta þynnkumeðal sem til er. Fann ekki fyrir því að hafa drukkið áfengi kvöldinu áður. Fór meira að segja aftur út á laugardagskvöldinu.

Svo var píkuhittingur í gær, en við erum farnar að hittast annan hvern þriðjudag sem er æði og náðum við loksins að setjast niður og spila, eitthvað sem við höfum verið að reyna að gera þegar við hittumst, en þar sem við hittumst alltaf svo sjaldan fór allur hittingurinn í tjatt. En það er alveg nauðsynlegt að eiga svona yndislegan vinahóp, algjörlega ómissandi..

Færeyjarferðin er bókuð og borguð. Við Erna förum til Elvu okkar 23 júlí og komum heim aftur 5 ágúst. Það verður fjör...

Svo á ég víst afmæli um helgina   stelpan að verða 20+  hehe..
Mun eyða afmælisdeginum í brúðkaupi. En ég er að fara með honum Hauk mínum sem "maki" í brúðkaup hjá Gretari Rafn og Manúelu Ósk. Ekki amalegt það. Eyða afmælisdeginum sínum í svaka flottri veislu, matur, vín og dansleikur með sálinni. Allt ókeypis. Flott veisla í tilefni dagsins míns :) hehe..

Have a nice one.. Hef grun um að ég fái gott afmælisveður um helgina....





Skrifað 24.6.2009 kl. 12:35 af Berglind

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

22.6.2009

Myndir...

Jæja þá er ég loksins búin að uppfæra myndirnar mínar á bloggið.
Búin að henda inn öllum myndum sem ég tók í maí mánuði.
Þar er nýtt frá

Eurovisonpartý sem haldið var hjá Ingunni 16 maí.



Útskriftarveislan hans Gunna Palla.




Fermingin hennar Nönnu.. Þrjú albúm. Undirbúningur-Kirkjan og Veislan...




Skrifað 22.6.2009 kl. 10:55 af Berglind

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

18.6.2009

Lélegt...

Djöfull er ég búin að standa mig illa í blogginu.. Ætlaði að blogga rosa flott blogg eftir síðasta tíman hjá einkaþálfaranum en sú sem ég æfi með tók prógrammið okkar því ég var á leiðinni norður og ætlaði að senda mér það, en ég er ekki enn farin að sjá það hjá henni, þannig ég get ekki alveg komið með lokatölur frá einkaþjálfuninni en þeir voru nokkuð góðar.. Fór allavegana á 3 vikum niður um  2 kg og 2% í fitu sem er NOKKUÐ GOTT :)
En eftir síðasta tíman hjá honum 28 maí þá brunaði ég norður um hvítasunnuhelgina til að vera viðstödd og hjálpa til með ferminguna hennar Nönnu minnar... ( er búin að setja eitthvað af myndum inn, fleiri á leiðinni ) Trúi því varla að litla,litla sem er nú samt stærri en ég sé komin í fullorðinsmannatölu.. Tíminn fljótur að líða og ég er enn UNG :) HEHE...
En helgin var alveg æði og fermingardagurinn fullkominn hjá henni. emoticon
Tók mér svo vikufrí fyrir norðan því ég nennti ekki að fara suður aftur á mánudegi til að koma aftur norður á föstudegi til að taka þátt í sjó sjó ( sjómannahelginni ) Það er eitthvað sem ég missi bara ekki af og hefur það nú samt gerst 2 sinnum ævina.. En sjó sjó í ár var alveg hrikalega skemmtileg. Jónsi í svörtum fötum kom og tjúttaði með strákunum í kokteil sem voru þá búnir að skýra sig strákarnir í engum fötum. Ballið heppnaðist alveg gríðarlega vel og skemmti ég mér alveg hrikalega vel.. Alltaf fylgir samt sjó sjó einhver leiðindi og gróusögur en það er bara partur af þessu og verður bara að vera þannig áfram, lítið við því að gera. Bara skemmtilegt ef fólk hefur ekkert annað að gera en að gera sögurnar meira krassandi en þær eru fyrir :) En leiðindi er eitthvað sem er alveg óþarfi og skemmir alveg fyrir þessari snilldar helgi..emoticon
Hendi inn sjó sjó myndunum mjög fljótlega...

Annars bara gleðilegan þjóðhátíðardag í gær og eigið góða helgi sem framundan er ...
emoticon

Skrifað 18.6.2009 kl. 12:52 af Berglind

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 1418
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 12999
Gestir í gær: 47
Samtals flettingar: 567987
Samtals gestir: 27067
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 05:16:55

Vafraðu um

Celine Dion í Köben

atburður liðinn í

1 ár

9 mánuði

16 daga

Þjóðhátíð í Eyjum

atburður liðinn í

1 ár

7 mánuði

21 daga

Stelpan sjálf..

Nafn:

Berglind Mjöll

Farsími:

im not gonna tell

MSN netfang:

spurðu bara.....

Afmælisdagur:

27 júní

Heimilisfang:

Hraunberg 11

Staðsetning:

Reykjavík

Heimasími:

..........................

Móðir:

Guðný Baldursdóttir

Önnur vefsíða:

www.facebook.com/

MySpace vefsíða:

www.myspace.com/bellamjolla

Um:

Betra er autt rúm en illa skipað

Uppáhalds bíómynd(ir):

10 things i hate about you og How to Lose a Guy in 10 Days-Love it ...Og flest allar spennumyndir

Uppáhalds tónlist:

Alæta á tónlist...

Uppáhalds manneskjur:

Bylgja systir,mamma mín Guðný og Olga :)

Uppáhalds matur:

Rjúpur,humar og pasta

Eftirminnilegast:

Wipeoutferðin !!

Tenglar