|
Allt sem þú lest er lygi Betra er autt rúm en illa skipað |
|
Blogg"Betra er autt rúm, en illa skipað" 7.10.2009Kuldi,nei takk! Hiti,já takk!Komin tími á blogg kannski..... -það sem er kannski svona helst í fréttum er að mér líður alveg hrikalega vel í nýju litlu kósý íbúðinni minni. Hreint og beint elska hana og finnst ekkert eins gott og að vera bara heima hjá mér, með kveikt á kertjum og hafa það kósý. -Átakið er enn til staðar. Hef ekki drukkið gos eða borðað nammi í 5 mánuði og finn enga löngun til þess að gera annað hvort. -12 okt er ég gengin 9 mánuði í reykingarleysið. Finnst eiginlega alveg ótrúlegt að ég hafi virkilega reykt í næstum 15 ár með pásum og púum. Mér líður miklu betur á líkama og sál eftir að ég hætti og hugsa í dag vá hvað ég var vitlaus að hafa ekki hætt fyrr, en ég vildi ekki hlusta á aðra enda gerist þetta ekki nema þú sért virkilega tilbúin til þess sjálfur og vilt þetta virkilega. -Ræktin er alltaf á sínum stað og er ég alveg ágætlega dugleg að heimsækja hana. Er búin að missa 7 kg síðan ég byrjaði í átakinu 4 maí sem þýðir að það eru aðeins 2 kg eftir í markmiðið sem ég setti mér en það var að vera komin í 60 kg fyrir jólin og ég er bara nokkð viss um að mér eigi eftir að takast það með þessu áframhaldi. Vill meina að góðir hlutir gerast hægt :) :) :) :) Finnst alveg ótrúlegt að ég hafi virkilega leyft mér að komast í 69 kg og ég tók eiginlega ekki eftir því nema að mér fannst ég "aðeins" hafa bætt á mig en alls ekki vera feit.. En vá hvað mér finnst það núna þegar ég er búin að missa þessi kg. Mér finnst ég líta miklu betur út og farin að sjá í vöðva sem ég bara vissi ekki einu sinni að ég hefði.. Ótrúlegt hvað maður getur leyft sér og maður tekur ekkert eftir því. -Er búin að vera í mjög strangri keyrslu núna í næstum 3 vikur. Búin að vera á fullu í ræktinni með einkaþjálfara, farin að æfa badminton 1 sinni í viku og blak 1 sinni í viku sem er AWESOME !! Ekkert búin að djamma í 3 helgar ( sem er rosalegt fyrir einhleypingin,djammarann mig hehehehe ) og búin að passa matarræðið. Vona að þetta stranga aðhald sé að borga sig aðeins fyrir það sem ég er búin að koma mér í og ætla ekki að segja að svo stöddu :) :) :) :) -Búin að fara á eina blakæfingu og mér gekk rosalega vel og stelpurnar í hópnum fannst ég bara vera býsna góð ( smá mont) Þegar þær svo spurðu mig hvaðan ég væri þá fannst þeim það bara ekkert skrítið að ég ég væri svona góð, það væri bara þannig að fólk frá Raufarhöfn er bara fætt með blakboltan í höndunum.. hehehe... Ekki amaleg meðmæli það :) Annars er ég að detta í smá vikufrí og ætla að heimsækja útlandið góða og vona ég að ég sjái smá sjó og sól. Allt betra en vetrarkóngurinn sem er búin að hertaka íslandið okkar svona snemma... Farvel :) Flettingar í dag: 31 Gestir í dag: 6 Flettingar í gær: 142 Gestir í gær: 17 Samtals flettingar: 553445 Samtals gestir: 27008 Tölur uppfærðar: 19.3.2010 10:45:46 |
Vafraðu um![]() Celine Dion í Köben atburður liðinn í 1 ár 9 mánuði 14 daga Eldra efni Stelpan sjálf.. Nafn: Berglind MjöllFarsími: im not gonna tellTölvupóstfang: berglind_mjoll@hotmail.comMSN netfang: spurðu bara.....Afmælisdagur: 27 júníHeimilisfang: Hraunberg 11Staðsetning: ReykjavíkHeimasími: ..........................Móðir: Guðný BaldursdóttirÖnnur vefsíða: www.facebook.com/MySpace vefsíða: www.myspace.com/bellamjollaUm: Betra er autt rúm en illa skipaðUppáhalds bíómynd(ir): 10 things i hate about you og How to Lose a Guy in 10 Days-Love it ...Og flest allar spennumyndirUppáhalds tónlist: Alæta á tónlist...Uppáhalds manneskjur: Bylgja systir,mamma mín Guðný og Olga :)Uppáhalds matur: Rjúpur,humar og pastaEftirminnilegast: Wipeoutferðin !!Tenglar
|