Allt sem þú lest er lygi

Kitty kitty bang bang..

Blogg

"Betra er autt rúm, en illa skipað"

5.1.2010

Árið 2010 verður gott ár. Takk fyrir það gamla sem var awesome !

Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur, fjölsk, vinir og kunningjar og takk fyrir það gamla.

Þá er enn og aftur nýtt ár gengið í garð og það er ekkert smá ár heldur 2010. Veit að það verður spennandi ár og margt og mikið spennandi mun gerast, er alveg viss um það.

Í byrjun árs 2009 sagði ég að það yrði árið mitt og ég held að ég hafi alveg staðið undir þau stóru orð. Því miður var þetta ár ekki gott öllum, en maður má ekki láta allt það sem er að gerast í kringum sig hafa áhrif á það hvað þú vilt nákvæmlega gera til að hafa það sem best.

En það sem stóð kannski svona mest uppúr hjá mér er að ég hætti að reykja og núna 12 jan eru komnir nkl 365 dagar siðan ég hætti að reykja og ég er endalaust stolt af mér, því satt best að segja hafði ég ekki alveg trú á mér fyrst. En ég tók einn dag í einu og þeir fara alveg að verða 365 talsins og ég skal alveg lofa því að 12 jan 2011 mun ég skrifa 730 dagar ! Einnig annað sem stendur uppúr er að ég breytti algjörlega um lífsstíl og fór að æfa á fullu og náði af mér heilum 9 kg sem einhvern vegin án þess að ég tók eftir eða vildi taka eftir voru komin á mig og bætti smá vöðvum líka í safnið sem höfðu verið í afslöppun í ansi langan tíma. Hætti að borða nammi og drekka gos 4 maí, tók þátt í hinum ýmsum ævintýrum og ferðaðist töluvert innalands sem utan og fór að búa ein.  Þetta eru hápunktarnir af því sem ég er stoltust af fyrir árið 2009.  En ég ætla samt að henda smá annál því það var alveg fjölmargt meira sem gerðist spennandi þetta góða ár.

En langar að setja inn hvernig mitt fyrsta blogg hljómaði sem ég skrifaði 7.1.2009

Ég held að árið 2009 eigi eftir að vera alveg hið ágætasta ár. Hef mikla trú á því. Ætla allavegana að vera jákvæð og ekki leyfa þessari kreppu að telja mér trú um neitt annað.
svo er ég aðeins farin að skipuleggja lengra í tíman, en ætla ekkert að uppljóstra því að svo stöddu. En ég held að ég muni hafa alveg nóg að gera árið 2009 og mér leiðist það nú ekki.

Ég tók þá ákvörðun í des að árið 2009 yrði heilsuár hjá mér. Hvort ég muni standa við það mun koma bara í ljós. Ég er allavegana byrjuð og það fyrsta sem ég tók mér fyrir hendur á þessu mikla heilsuári mínu var matarræðið, ekkert nammi né gos nema um helgar og ekki borða á milli mála.Það er komin vika síðan ég byrjaði á því það næsta er að hætta að reykja.Og er þetta dagur nr 2 sem er reyklaus hjá mér og mun ég aðeins taka einn dag í einu. Gæti kannski reykt þennan daginn enn ekki hinn þó áætlun sé að reykja bara ekki neitt árið 2009. Það næsta sem ég mun taka upp á heilsuárinu miklu er að fara að æfa í Laugum, World Class. Hef nú reyndar aldrei farið þangað þannig ef einhverjum langar að koma með mér sem er að æfa þar bara svona taka mig með og sýna mér staðin og aðeins að leyfa mér að kynnast þessu þá yrði ég mjög þakklát með það :) Þetta er ekki áramót heit enda hef ég aldrei verið góð í því að standa við þau heit, þetta er bara ákvörðun sem ég tók í des og vonandi gengur þetta allt saman upp hjá mér...

Skrifaði svo 17.2.2009


Ég held að árið 2009 sé og verði mitt ár. Miklar breytingar hafa átt sér stað með mig og fleiri munu sjálfsagt koma í ljós þegar líða fer á árið. Það er nú ekki mikið búið af því en ég hef grun um að þetta eigi algjörlega eftir að vera ár Berglindar.

En það greinilega skiptir máli að vera jákvæður og ákveðin.  Það allavegana gekk allt upp hjá mér!

En svona leit síðasta ár út hjá mér.

Janúar
- Hætti að reykja
- Ákvað að bæta heilsuna og matarræðið og var allt tekið í gegn.
- Lét klippa af mér hárið, nánast.
- Fór á þorrablót í Fellabænum.

Febrúar.
-Stóð þorrablótið á Raufarhöfn uppúr og það var ræktast mikið.

Mars.
- Fór mikið í skemmtanahald. Árshátíð Mbl. Skagfirðingarkvöld. Bústaðarferð.

Apríl.
- Héldum Laugahitting á Players ég og nafna mín Berglind hans Gunnars Páls. Eyddi páskunum svo á Egilsstöðum, fyrsta skiptið á ævinni og það var æði. Mikið legið í pottinum og krúsað um á snjósleða.

Maí.
- Árshátíð 365 miðla. Eurovison og öllu sem því fylgir. Byrjaði hjá einkaþjálfara, ein besta fjárfesting árið 2009. Tók þátt í fjölþrautakeppni á vegum vinnunnar í nauthólsvíkinni. Hætti að borða nammi og drekka gos. Skellti mér svo á golfnámskeið sem var virkilega skemmtilegt en stundaði því miður lítið golfið þetta sumarið. Svo endaði mánuðirinn á fermingardeginum hennar Nönnu minnar sem var alveg yndislegur í alla staði.

Júní.
- Labbaði esjuna, því miður ekki uppá topp ætlaði að gera það aftur seinna þennan mánuðinn en gerði það því miður ekki og er það klárlega á 2010 planinu. Svo átti ég afmæli þennan mánuð, ekkert merkisafmæli og eyddi ég afmælinu mínu í svaka flottu celeb brúkaupi þar sem ég var maki Hauks í hjá þeim Manúelu Ósk og Grétari Rafn.

Júli.
- Ég ferðaðist aðeins í júlí. Kom við á Akranesi og náði einu kvöldi á Írskum dögum, fór norður á Laugu á ættarmót Sveinunga sem var nátturulega bara snilld og ekkert slæmt hægt að segja um það þegar þeir hittast. Kíkti til Egilsstaða í nokkra dag svo aðeins á Raufarhöfn og endaði þennan part frísins í Ásbyrgi á ásbyrgismótinu. Seinni partin í júli þjónaði ég og naut góðs af í brúðakaupinu hjá Hjöddu og Magga og svo lá leiðinn úr landi og haldið með Norrænu til Færeyjar með geggjuðum ferðafélaga. Ernu Ragg.

Ágúst.
- 'Tók versló í Færeyjum. Yndislegur staðir í allastaði. Svo tók við í ágúst að pakka niður föggur sínar og fór svo á hinar ýmsu skemmtanir á suðurnesjunum.

Sept
- Flutti ég í stúdeó íbúð í Breiðholtinu. Byrjaði að æfa badminton og hélt áfram að stunda Reykjanesbæinn.

Okt.
- Þá ákvað kella að fara á vit ævintýrana og skellti sér til Argentínu til að taka þátt í wipeout. Allir sem hafa lesið bloggið mitt vita nú hvernig það ferðalag var og allir fá að sjá í feb 2010 hvernig mér svo gekk.

Nóv.
- Byrjaði ég í nýrri vinnu innan veggja 365 miðla og fór í það sem kallast innköllun auglýsinga fyrir fréttablaðið og á þetta starf alveg hrikalega vel við mig, krefst skipulags sem ég tel mig vera nokkuð góða í.

Des.
- jólin og stressið sem fylgir því, í vinnu sem og utan.


Þetta er tekið svona saman í fljótu. En eins og byrjun þessa bloggs þá var þetta alveg yndislegt ár sem ég helgaði mér nr 1-2 og 3 og sé ég ekkert eftir því, því þegar eftir á er litið þá kem ég út úr þessu ári sem miklu sterkari, jákvæðari og hamingjusamari manneskja.

Árið 2010 er ég að hugsa um að leyfa fleirum að koma að mínu lífi. Veit að árið 2010 verði ár ástarinnar í mínu lífi. Ætla allavegana að trúa því :)
Svo verð ég nátturulega árinu eldri, en það er eitthvað sem ég hef alltaf verið að hræðast en ég held að það að verða 30 ára sé bara til hins betra.

Takk kæru lesendur og vinir fyrir að hafa nennt að fylgjast með þessum bloggum mínum síðustu ár og ég skal ekki hætta ef ég hef einhverja til þess að nenna að lesa þetta bull í mér.

Knús í hús :)


Skrifað 5.1.2010 kl. 10:27 af Berglind

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 3
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 2509
Gestir í gær: 17
Samtals flettingar: 550117
Samtals gestir: 26901
Tölur uppfærðar: 14.3.2010 00:17:12

Vafraðu um

Celine Dion í Köben

atburður liðinn í

1 ár

9 mánuði

9 daga

Þjóðhátíð í Eyjum

atburður liðinn í

1 ár

7 mánuði

14 daga

Stelpan sjálf..

Nafn:

Berglind Mjöll

Farsími:

im not gonna tell

MSN netfang:

spurðu bara.....

Afmælisdagur:

27 júní

Heimilisfang:

Tunguvegur 5

Staðsetning:

Reykjavík

Heimasími:

..........................

Móðir:

Guðný Baldursdóttir

Önnur vefsíða:

www.facebook.com/

MySpace vefsíða:

www.myspace.com/bellamjolla

Uppáhalds bíómynd(ir):

10 things i hate about you og How to Lose a Guy in 10 Days-Love it ...Og flest allar spennumyndir

Uppáhalds tónlist:

Alæta á tónlist...

Uppáhalds manneskjur:

Bylgja systir,mamma mín Guðný og Olga :)

Uppáhalds matur:

Rjúpur,humar og pasta

Tenglar